Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 21
~N. Kv. KENNIMAÐUR ) 15 þekkti hann ekki í fyrstu, því að hann forðaðist að líta framan í gestinn. Hann fór að þurrka framan úr sér með renn- blautum vettlingsgarmi, því að það mátti onginn komast að því, að hann hafði ver- ið að gráta. Þessi óvænta hjálp fyllti hann nýju þreki og hugrekki. Nú var erfiðið ekki eins vonlaust og það hafði verið. Þeir strituðu þegjandi við að koma án- um áleiðis. Það gekk hægt, en þó alltaf í úttina. Þeir máttu bera sum lömbin spöl fyrir spöl, því að þau voru orðin svo þrek- uð, að þau gátu ekki staðið á grönnum, Veikbyggðum fótum sínum. Séra Bjarna duldist það ekki, að drengurinn var að gefast upp, þegar hann kom, en koma hans hafði gefið honum nýja von og nýjan þrótt. Tilhugsunin um að hafa komið til hjálpar, þegar þörfin var mest og brýn- ust, fyllti hann hlýrri gleði, sem vermdi lnu að hjartarótum. Hann fann viljann °g þróttinn stælast við að etja kappi við erfiðieikana. Hann varð vígreifur eins og vikingur, sem finnur mesta nautn í því að - ^úta stálið tala við fjandmenn sína. Eftir mikið erfiði komu þeir ánum heim að húsunum. Þar var konan fyrir og hjálpaði þeim til þess að setja þær inn. h’að var ekki meira talað en þörf krafði, °g þá aðeins um starf þeirra þessa stund. Tvö lömbin voru svo dofin af kulda og vosbúð, að konan tók þau í fangið og fór þau inn í bæ, til þess að koma lífi í Þau, ef kostur væri, við eldavélina. Á með- an hjálpaði séra Bjarni drengnum við að §anga svo frá ánum, að óhætt væri að skilja við þær, á meðan þeir færu aftur ht í hríðina og leituðu fleiri uppi. En það Var allt annað en létt verk. Þær, sem áttu lömbin sín heima í bæ, æddu jarmandi Urn aht húsið og komu öllu á ringulreið. h’egar ró færðist yfir, Ieit prestur á hrenginn. Hann hafði hallað sér- fram á garðabandið. Forin rann niður af honum. Andlitið, sem var atað í óhreinindum, var alvarlegt og þreytulegt. — Er þér ekki kalt, góði minn? spurði prestur vingjarnlega. Drengurinn hrökk upp; sem snöggvast hafði hann látið undan ofurvaldi þreyt-{ unnar, en hann mátti ekki láta neinn sjá, að hann væri þreyttur. — Nei, ekki svo mjög, svaraði hann stuttaralega, en svarið var ekki sannfær- andi. — Áttu ekki olíutreyju, til þess að vera í til hlífðar? — Hún var lánuð í vetur og varð ónýt. — En hefirðu ekki þurr föt að fara í, áður en við förum út aftur, þó ekki sé nema að ofanverðu? Ég lána þér svo olíu- treyjuna mína, svo að þú getir haldizt nokkuð þurr. Ég er of mikið búinn til þess að geta hreyft mig nokkuð að gagni. Og séra Bjarni lét ekki lenda við orðin tóm. Hann klæddi sig úr treyjunni og tróð henni upp á drenginn, sem tók við henni tregðulega, en þorði þó ekki að and- mæla. — Svo bíð ég hér, hélt prestur áfram, —■ á meðan þú ferð heim og hefir fataskipti. Þú verður ekki mjög lengi, því að okkur veitir ekki af því að hafa hraðan á. Þér er óhætt að trúa mér fyrir því að líta hér eftir öllu á meðan. Þegar hurðin hafði lokazt á eftir drengnum, kraup séra Bjarni niður í króna og fór að verma lömbunum, sem kaldast var. Hann hristi þau til og nudd- aði á þeim fæturna, þangað til þeim fór að hlýna svo mikið, að þau fóru að geta staðið. Þá fór hann að reyna til að koma þeim á spena, en það gekk illa. Hann varð því að gefast upp við þær tilraunir. Eftir skamma stund komu mæðginin. Drengurinn hafði skipt um föt og var nú kominn í olíutreyjuna. Hann var hress- ari í bragði og honum leið betur í þurru fötunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.