Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 22

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 22
16 KENNIMAÐUR N. Kv. — Það er þó aldrei alvara yðar að láta drenginn fara í olíutreyjnua? spurði kon- an. Þér verðið að hugsa um yður sjálfan. — Ég er einmitt að hugsa um sjálfan mig, svaraði séra Bjarni hressilega. í treyjunni utan yfir þessum þykka frakka gat ég bókstaflega ekkert hreyft mig. Það. var svo sem ekki eingöngu mannkærleiki, sem fékk mig til þess að láta treyjuna af hendi, bætti hann við með blæ af gaman- semi í röddinni. Hann vildi vera laus við allt þakklæti að þessu sinni. — Ég get ekki fellt mig við, að þér sé- uð að stríða í þessu okkar vegna, hélt konan áfram. — Er það ekki einmitt hlutverk okkar prestanna, að leita týndra sauða? sagði prestur léttilega og bjó sig til ferðar. Nú förum við karlmennirnir og leitum uppi það, sem vantar. En þér skuluð ekki hætta yður út í þetta véður. Það er ekki' fyrir kvenfólk. Þér lítið eftir hér, á með- an við erum í burtu. Án þess að bíða eftir svari, snaraðist hann aftur út í óveðrið, ásamt drengnum. Þeir gengu greitt undan veðrinu suður í hvammana nokkru fyrir sunnan túnið, en þar var helzt von að ærnar héldu sig. Prestur teymdi Léttfeta á eftir sér fyrst, en þegar kom suður fyrir túnið, skipaði hann drengnum að fara á bak, en hljóp sjálfur með. Honum fannst hann aldrei hafa verið jafnléttur á sér og nú. í hvömmunum rákust þeir á fáeinar lambær. Þar var dálítið skjól, svo að þeir létu þær eiga sig, á meðan þeir leituðu þar í grend. Eftir nokkra leit rákust þeir á fleiri, komu þeim til hinna og héldu síðan áfram og fóru nú um stærra svæði, en höfðu að- eins þrjár. — Vantar ekki eitthvað ennþá? spurði séra Bjarni drenginn, er þeir voru búnir að koma þeim öllum saman í hóp. Drengurinn taldi og lagði saman; það, sem þarna var, og það, sem heim var komið. —- Það vantar þrjár ennþá, upplýsti hann að lokum. — Geturðu gizkað á, hvar þær muni vera? . j — Ef til vill .hér fram með ánni, sagði drengurinn hugsandi. — Viltu ekki skreppa þangað á honum Léttfeta? Ég reyni að koma þessum áleið- is á meðan. Drengurinn fór orðalaust. Hann treystí sér ekki til þess að andmæla prestinum. Þrátt fyrir storminn og hríðina var hon- um svo undarlega létt í skapi. Það var munur að sitja á gæðingi hjá því að detta sífellt um sína eigin fætur. Léttfeti sýndi honum, fulla auðsveipni. Það var eins og hann skildi, að hann mætti ekki bregðast því trausti, sem til hans var borið. — Eftir nokkra leit fann drengurinn ærnar, sem vantaði. Honum hlýnaði öllum af feginleik, þó að það erfiðasta væri eftir. að koma þeim heim gegn veðrmu. Þegar drengurinn var farinn, fór séra Bjarni að reka ærnar heimleiðis, en hon- um varð það brátt ljóst að það var hægra sagt en gert. Þær,| sem höfðu elztu og sprækustu lömbin, rásuðu sitt á hvað og sátu um að verða eftir, þar sem voru skjól. Yngstu og veikbyggðustu lömbin gátu varla gengið, og mæðurnar viku ekkx fet frá þeim. Hann varð ýmist að þoka þeim áfram fet fyrir fet, eða vera á harða- spretti, til þess að týna ekki neinu út í hríðina. Þó að þetta væri raunar vonlaust verk fyrir einn ,datt honum ekki í hug að gefast upp. Hann tók í fangið þau lömbin, sem þjökuðust voru, og hljóp með þau spöl og spöl og lét mæðurnar elta. Það gekk ekki alltaf vel. Ærnar voru hræddar við manninn. Þær áttuðu sig ekki alltaf á því, hvað orðið hafði af lömbunum, hringsnerust jarmandi um sjálfar sig og hlupu stundum góðan spöl til baka til

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.