Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 23
N. Kv. KENNIMAÐUR 17 þess að leita. Þá varð hann annaðhvort að sleppa lömbunum og hlaupa fyrir þær eða lokka þær með því að líkja eftir skjálfandi, grönnum lambsrómi, me-e, ffie-e-e-e. Eftir nokkurn tíma kom drengurinn með ærnar, sem hann hafði fundið. Þær voru allar með gömul og tápmikil lömb og höfðu rekizt vel. Þá fór þeim að ganga betur, en þó gekk þeim erfiðlega að koma þeim heim og í hús. Fyrst þegar því var lokið, fann séra Bjarni, að hann var dauð- þreyttur, en hann var svo ánægður með sjálfan sig og árangurinn af starfi sínu, að hann skeytti ekki um þreytuna. Hon- um leið nærri því ótrúlega vel, þó að hann væri holdvotur. Veðrið var að breytast. Stormurinn var að vísu hinn sami ennþá, en úrfellið var minna. Það var farið að rofa í heiðríkju- bletti á stöku stað. Það mundi birta upp með frosti, er liði á nóttina. Vís dauði fyr- *r öll þau lömb, sem ekki gátu komizt í hús. En það var ekki öll fyrirhöfn búin, þó að ærnar væru komnar í hús. Það varð að setja upp skilrúm, svo að þær ærnar, sem höfðu veikbyggðust lömb, gætu verið sér. Svo þurfti að hjúkra þeim, sem verst voru í^rin. Með fáein þurfti heim í bæ, til þess að hlýja þeim við eldavélina. ^egar kyrrð tók að færast yfir, tóku þeir sér hvíld. Prestur sat á kassagarmi UPP í garðanum með lamb í fanginu, sem hann var að verma. Hann smeygði því lnn undir frakkann sinn, til þess að geta uuðlað því sem mestum yl. Hann fann Htla kroppinn kippast til af kuldahrolli, Sem fór smá-rénandi. Eftir dálitla stund ■^ér það að mimra með snoppuna upp við b^jóst hans, eins og það vildi leita að spena. Því var borgið, öllum lömbunum Var borgið og honum varð hlýtt í huga v*ð þá hugsun, að hann hafði þó átt nokk- urn þátt í því að bjarga þeim frá vísum dauða. Drengurinn stóð við garðann og hallaði sér upp að hopum. Þrátt fyrir þreytuna gleymdi hann ekki eitt augnablik, að það var hann, sem bar ábyrgðina á þessu öllu saman. Með athugulu augnaráði leit hann eftir því, að allt væri í röð og reglu. Prestur var öðru hvoru að fitja upp á umræðuefni við hann, en drengur var hálffeiminn í fyrstu, svo að lítið varð úr samræðum. — Langar þig ekki sjálfan til þess að verða fermdur? spurði séra Bjarni. Raun- ar sá hann eftir spurningunni strax og han var búinn að bera hana upp. Ep þrátt fyrir það gat hann ekki sleppt þessu tæki- færi til þess að komast eftir vilja drengs- ins sjálfs í þessu máli. Þó að móðir hans hefði aftekið, að hann yrði fermdur, gat drengurinn sjálfur óskað þess, og ef svo reyndist, hafði móðirin engan rétt til þess að koma í veg fyrir það. — Nei, svaraði drengurinn, emþó með nokkrum dræmingi. — Hvers vegna viltu ekki láta ferma Þig? Drengurinn þagði nokkra stund áður en hann svaraði, en svo sagði hann allt í einu með nokkrum ákafa í röddinni. — Ég vil ekki fara á sveitina. — Þú þarft ekki að fara á sveitina, þð að þú verðir fermdur, sagði prestur. — Jú, það er svo dýrt að láta ferma sig, og mamma á enga peninga. Það va'rð þögn. Prestur vissi ekki vel, hvort hann átti að halda samtalinu áfram eða láta staðar numið. En þá var það drengurinn, sem tók til máls, lágróma og hikandi, eins og hann hálfpartinn blygð- aðist sín fyrir að ávarpa prestinn að fyrra bragði. — Hvernig er það? Er ekki hægt að verða góður og duglegur maður, þó að maður sé ekki fermdur? 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.