Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 29
N. Kv. 23 SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI Jóna (f. 12/5 1851) fluttist rúmlega tví- tug að aldri að Nesi til Elísabetar systur sinnar. Nokkru síðar giftist hún Gunnari syni Einars, er um það leyti var verzlun- armaður á Akureyri. Haustið 1876 fór hún utan til Kaupmannahafnar og dvaldi þar veturinn eftir við nám, og var að því loknu fengin til að veita forstöðu Kvenna- skóla Skagfirðinga að Ási í Hegranesi, hinn eina vetur, sem hann starfaði þar (1877—1878). Þótti hún ágætur kennari. Næsta vetur var hún forstöðukona Kvennaskóla Eyfirðinga að Laugalandi í fjarveru forstöðukonunnar, frú Valgerð- ar Þorsteinsdóttur. Jóna lézt að Nesi 15. febr. 1880, tæplega þrítug að aldri. I eftirmælum í Norðlingi segir, að hún hafi verið sjálfkjörin til að veita skólan- um á Laugalandi forstöðu í forföllum hinnar ráðnu forstöðukonu og að hún hafi feyst störfin af hendi með jöfnu lofi og aðdáun prófdómenda, sem elsku og virð- lngu lærimeyja. Bera þeir vitnisburðir, sem hún fékk fyrir þessi störf sín, vott um atgjörvi hennar og álit og um menn- lngu foreldrahúsanna, en þar hlaut hún Þó að hafa fengið mesta menntun sína. Einbirni hennar og Gunnars var Einar, stofnandi og fyrsti ritstjóri dagblaðsins Vísir. Jakobína (f. 1854) var yngst þeirra Ntöðrudalssystra. Hún giftist heima þar í f'JÖðrudal (26/5 1876) Þorsteini Einars- syni frá Brú. Þau bjuggu þar skamma taíð, sem enn verður getið; fluttust fyfst að Brú og þaðan brátt aftur til Akureyr- ar- Þar andaðist hún 29. okt. 1884, „vel ^iermt, gáfuð og góð kona“, segir í eftir- ^selum. — Á meðal barna hennar og -^orsteins eru Vernharður menntaskóla- kennari á Akureyri og Soffía kona Jóns J* Bíldfells í Winnipeg. Reykul ábúð. 1876—1881. Næstu fitnm árin eftir að Ástríður, ekkja Sigurðar, lét af ábúð í Möðrudal, var ábúðin reykul, ýmist í höndum Möðrudalsættar eða Brúarættar, sem að loknu þessu tímabili fékk eignarhald á jörðinni. Stefán Einarsson hafði kvænzt Aðal- björgu dóttur Ástríðar árið, sem hann var ráðsmaður á búi hennar (26. okt. 1875). Vorið eftir hófu þau búskap á jörðinni. Sama vorið fluttist Einar, faðir Stefáns, frá Gestreiðarstöðum að Möðrudal og fékk ábúð á móti honum. Einnig hafði flutzt að Möðrudal Þorsteinn sonur Ein- ars og kvæntist Jakobínu dóttur Ástríðar vorið 1876. Hann fór utan sama haúst til Kaupmannahafnar til að nema blikk- smíði og niðursuðu. Einar Einarsson andaðist um þessar mundir og tók Stefán þá ábúð á allri jörð- inni. Aðalbjörg Sigurðardóttir andaðist 28. ágúst 1876 af barnsförum að fyrsta barni þeirra Stefáns, en barnið lifði. Það var sveinbarn, og var sveinninn heitinn Benedikt Aðalsteinn; hann dó rúmlega þriggja ára gamall (4/10 1879) að Ljósa- vatni. Eftir missi Aðalbjargar fékk Stefán ráðskonu, Guðnýju Arnfríði Sigurðar- dóttur frá Ljósavatni, og kvæntist henni litlu síðar (7/9 1877). Þau giftust að Ljósavatni. Vorið 1878 fluttu þau Stefán og Arnfríður búferlum að Ljósavatni. Þorsteinn bróðir Stefáns var þá kominn úr siglingunni og tók ábúðina á Möðru- dal. Bjó hann þar aðeins eitt ár, en flutt- ist þá að Brú með fjölskyldu sína og Ástríði tengdadmóður sína. Jón Metúsalemsson, er undarfarið hafði búið í Víðidal, fluttist þá á óðal ættar sinnar. Bjó hann þar einn næsta ár, en vori seinna (1880) kom Stefán Einarsson aftur frá Ljósavatni og tók ábúð á móti Jóni. Bjuggu þeir báðir í Möðrudal, Jón og Stefán, í eitt ár. Að árinu liðnu, vorið

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.