Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Side 34

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Side 34
2S DÆTUR FRUMSKtoGARINS N. Kv. nokkur skref. Hershöfðinginn notaði tæki- færið og hvíslaði að honum: „Gefið þessu mannhraki nokkurra stunda umhugsunarfrest. Vera má, að morðinginn hafi ógnað honum, ef hann þegði ekki um níðingsverkið og þér vitið, að hér í landi eru þeir menn til, sem standa við orð sín í þeim efnum.“ Don Jaime sneri sér að Ruben og mælti: „Hershöfðinginn hefir stungið upp á, að yður verði veittur nokkur svarfrestur. Ég fellst á uppástungu hans, en ég býð ekki fé við lífi yðar, ef þér gefið ekki greið svör að þeim fresti liðnum.“ Að svo mæltu yfirgaf hann fangelsið, ásamt Banderas og þjóninum. Þeir lokuðu hurðinni vandlega á eftir sér. Don Jaime og Banderas fóru á fund Donnu Dolores og sögðu henni tíðindin. Þótt hún vissi fyrir með nokkurn veginn fullri vissu, að faðir sinn hefði verið myrt- ur, þá kom þó frásögn kvekarans yfir hana eins og reiðarslag. Sorg systkinanna var svo augljós og sár, að hershöfðinginn taldi hyggilegast að draga sig í hlé, eftir að hafa látið meðaumkunn sína í ljósi með nokkr- um orðum. Sólin var í hádegisstað, er þessir síðustu atburðir gerðust. Hitinn var illþolandi öðrum en þeim, sem vanir eru veðráttunni á þessum slóðum. Um þetta leyti dags leita menn og dýr hvjldar og svölunar á þá staði, þar sem einhvern skugga er að finna. Um lágnættið er meira lífsmark á öllu á ökrum og skógum, fjöllum og gresjum, en um hádegisleytið. Djúp þögn ríkti yfir haciendu del Rodri- guez. Enginn vindblær hrærði krónur trjánna, né kornöx akranna. Ekkert hljóð heyrðist og hvorki menn né dýr sáust á ferli. Jafnvel Coloradofljótið virtist vera fallið í hálfgerðan dvala; eins og bræddur málmur seig það áfram, hægt og seinlega. Á haciendunni voru allir gluggar byrgðir með þykkum tjöldum og íbúamir lágu fyr- ir, og höfðust ekki að, en biðu kvöldsval- ans með óþreyju. Skyndilega opnuðust einar af dyrum þeim, sem vissu út að hlaðinu; maður kom í gættina, og skimaði flóttalega í kringum sig. Er hann virtist hafa fullvissað sig um, að allir gluggar og dyr væru lokaðar, læddist hann hljóðlega fram á hlaðið. Hann hafði meðferðis boga af þeirri teg- und, sem rauðskinnar nota enn í dag. Bog- ar þessir eru smíðaðir úr sedrusviði, sveigj- anlegum og þolnum, en strengurinn er úr elgsgyrni. í belti, sem maðurinn var gyrð- ur, voru nokkrar örfar úr hickoríviði, með breiðum og biturlegum málmoddi. Þessi maður, sem svo kynlegum vopn- um var búinn, var enginn annar en Banderas. Hann laumaðist meðfram hús- veggnum, þangað til hann kom að fang- elsisdyrunum. „Það verður að koma í veg fyrir það, að þrællinn verði okkur að skaða!“ tautaði hann. „Hann verður að deyja, því að eftir eigin sögn hefir hann verið sjónarvottur að morðinu á plantekrueigandanum“. Lítið op var á fangelsishurðinni í axlar- hæð, það var notað, þegar matur var færð- ur þeim, sem í fangelsinu voru. Inn um þetta op ætlaði Banderas að senda hið banvæna skeyti sitt. En bogann hafði hann valið sér, vegna þess að notkun hans hafði ekki í för með sér neinn hávaða. Meðan Banderas lagði örina á streng- inn og spennti bogann, beygði hann sig niður, svo að hann sæist ekki innan frá. Því næst rétti hann úr sér leiftur snöggt og beindi boganum inn um gatið á hurð- inni. En hann skaut ekki. Hendur hans hnigu magnlausar niður. Hann rak upp lágt undrunaróþ: Fangelsisklefinn var mannlaus. — Þegar hann hafði jafnað sig. dálítið, tók hann að hugleiða, með hvaða hætti fanginn hefði getað sloppið út. En það bar engan árangur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.