Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Qupperneq 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Qupperneq 35
Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 29 Svitinn bogaði af andliti hershöfðingj- ans. „I nafni allra heilagra! Þetta mannkvik- indi er kjörsonur djöfulsins“, tautaði hann, »en ég get huggað mig við það, að hans muni varla von hingað aftur fyrst um sinn, fyrst að honum tókst að flýja héðan. Þrátt fyrir það verð ég að framkvæma áform TOín í skyndi. Nú er röðin komin að þér, drambsami Don Jaime!“ Hann hélt aftur til herbergis síns. Þegar Þangað kom lokaði hann að sér, kastaði sér upp í legubekkinn og tók að íhuga alla ^aálavexti. „Flótti kvekarans kemur mér raunar vel. Don Jaime vill fyrir alla muni fá vitn- eskju um, hverjir voru banamenn föður hans og mun því hefja leit að kvekaran- Ura, hér um nágrennið. Og ekki væri það °eðlilegt, þótt einhver óhöpþ kæmu fyrir hann í þeirri leit“. Er líða tók á daginn og loftið varð sval- ara> færðist nýtt líf í öll störf á haciend- unni. Þjónustufólkið fór á stjá. Don Jaime fór með tveim þjónum sínum til fanga- klefans, til að yfirheyra kvekarann að nýju. [ „Hvernig líður hinni fögru systur yð- ar?“ kallaði Banderas á eftir þeim. „Hún situr á herbergi sínu og syrgir föður okkar“, svaraði Don Jaime dapur í bragði. »Hvert er förinni heitið?“ »Til fangaklefans, Þér hljótið að skilja, bversu mikið áhugamál mér er að fá að Vlta nöfnin á morðingjum föður míns“. »Vissulega. Komið þá. Ég vil gjarnan fylgja yður“, mælti Banderas. „Þessi kvek- arahundur skal sannarlega verða að með- enna, annars verður' hann barinn til öauða. Hefndin er einnig mín“. Annar þjónanna opnaði klefadyrnar og °n Jaime gekk inn. En á sama augna- iki sá hann, að klefinn var mannlaus. ann kallaði undrandi til Banderas: „Hann er hér ekki!“ „Hvað segið þér!“ svaraði hershöfðing- inn og þóttist undrandi. „Komið inn fyrir, hershöfðingi. Þér sjá- ið, að hér er enginn. Hershöfðinginn skimaði í kringum sig. „Fangelsið er með sömu vegsummerkj- um og áður, og þessi kvekari er þó enginn fugl, sem flogið geti burt, þegar honum þókknast“. Ég skil það ekki“, mælti Don Jaime, „og bæri ég ekki sjálfur lykilinn í vasa mín- um, mundi ég hafa álitið, að einhver hefði opnað og sleppt honum út“. Þeir rannsökuðu veggi, glugga og dyr fangaklefans gaumgæfilega, en fundu ekk- ert athugavert. Allt virtist vera með kyrr- um kjörum. „Ég hlýt að játa það“, mælti Don Jaime, „að þessi dularfulli flótti gerir mig áhyggjufullan". „Já“, svaraði Banderas, „þetta er mjög undarlegt“. „Sjáið þér hér, herra“, mælti nú þjónn- inn við Don Jaime, „gólfábreiðunni hefir verið lyft upp á einum stað“. „Það er rétt, en það breytir engu“, svar- aði Don Jaime. „Ef til víll ekki. En getur ekki hugsazt, að úrasalinn hafi komizt uhdan gegnum gólfið?“ „Það er óhugsandi“, mælti Banderas. Þeir lyftu ábreiðunni upp og öllum til mikillar undrunar sáu þeir, að hleri var í gólfinu. Don Jaime lyfti honum upp og leit niður. Niðri var svartamyrkur. En er augu hans höfðu vanizt dimmunni, virtist honum gólfflötur þessarar kjallaraholu vera á sífelldu iði, og endurkasta hinni daufu skímu, er að ofan kom. „Ég get ekki betur séð en að hér sé vatn undir“, mælti hann undrandi við félaga sína, „og hafi úrasalinn flúið hingað niður, þá er hann varla lengur í tölu hinna lif- andi“.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.