Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 39
N; Kv. DÆTUR FRUMSKOGARINS 33 ið til jarðar og marið undir sér. Jafnvel úlf- arnir skelfdust ógnir veðursins og kvein- uðu aumkunnarlega úti í skóginum. Don Jaime lét þó óveðrið ekkert á sig fá. En hann var áhyggjufullur vegna syst- ur sinnar, sem beið hans ein heima og án verndar, ef eitthvað óvænt kynni að bera að höndum. Hann óttaðist, að hesturinn mundi bera sig langt af leið, án þess að hann gæti að gert. Að öðru leyti hafði hann yndi af ferðinni, sem þó líktist fremur gandreið en för mennsks manns. Að lokum virtist Don Jaime sem draga tæki af reiðskjótanum. Þótt hann .héldi áfram með sama æðisgengna ofurkappinu og áður, mátti þó greinilega finna, að kraft- ur hans voru að þrotum komnir. Don Jaime þóttist geta dregið þá álykt- un af aðförum hestsins, að líkamlegur sárs- uuki, en ekki fælni eða neitt slíkt, ætti sök á því, hvernig hann lét. Og jafn kunnugur °g Don Jaime var mexikönsku hestunum, vissi hann með vissu, að hesturinn mundi ekki sefast, heldur mundi máttur hans smám saman þverra, unz hann hnigi dauð- ur niður. Dauðastundin gat ekki verið langt undan. Don Jaime áleit hyggilegagt að bíða hennar ekki, til að eiga ekki á hættu Hmlestast við fallið. Hann strauk þessum vesalings gamla forunaut sínum angurvært um makkann, siðan rak hann rýting sinn í háls hans. Hesturinn féll til jarðar eins og hann vasri lostinn eldingu. Don Jaime var við- búinn og stökk af baki um leið og hestur- inn féll. Hann spretti hnakknum af, sem var, ásamt áklæðinu, gull- og silfurbúið að mexikönskum hætti, Hvortveggja voru kjörgripir hinir mestu og mörg hundruð öollara virði. Don Jaime hugðist nota ánakkinn fyrir höfðalag, ef hann yrði neyddur til að láta fyrirberast úti um nóttina. Regnið streymdi niður og hver þruman rak aðra í sífellu. Stormurinn óð grenjandi um skóginn og reif jafnvel stærðar tré upp með rótum, sem væru þau visin hálmstrá. Don Jaime tók hnakkinn og áklæðið á bak sér og hélt för sinni áfram fótgang- andi. Hann þóttist viss um, að hann næði ekki heim um nóttina, enda bjóst hann við því, að hann væri orðinn villtur. Þess vegna tók hann að leita einhvers afdreps, sem verið gæti honum náttstaður. Að síðustu fann hann dálítinn kletta- skúta. Þangað bar hann hnakkinn og áklæðið. Hann tíndi saman kvisti og grein- ar og kveikti bál, með fram til að bægja frá sér villidýrum þeim, sem reika um skóginn að næturlagi. Því næst bjó hann um sig, sem bezt hann kunni og lagðist fyr- ir. Upp úr hnakktösku sinni tók hann vín- flösku, uxakjöt og maísbrauð og byrjaði að snæða. Þegar hann hafði gert brauðinu og kjöt- inu góð skil og ætlaði að súpa á flöskunni, heyrðist honum, þrátt fyrir stormgnýinn og þrumuhljóðið, eins og gengið væri í námunda við sig. Hann lét flöskuna síga og skimaði í kringum sig. Vera hans í frumskóginum hafði gert heyrn hans óvenju næma, svo að hann átti bágt með að trúa því, að sér hefði misheyrzt. . En hann sá ekkert grunsamlegt. Eldur- inn logaði glatt, svo að myrkrið var enn geigvænlegra í kring og gerði honum enn örðugra að sjá nokkuð lengra frá sér. Hann bar því flöskuna aftur að vörum sér, en í sömu svipan kvað við skothljóð. Annað hvort byssukúla eða skógargrein sló flöskuna úr hendi hans, svo að hún féll til jarðar og brotnaði. Don Jaime þreif skammbyssu sína, stökk fram yfir eldstæðið og þaut út í skóginn. En hann gat ekkert séð tortryggilegt. Og eftir að hafa leitað lengi árangurslaust 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.