Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 40

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 40
34 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. að tilræðismanninum, sneri hann aftur til hælis síns. Eldurinn skíðlogaði og allt var þar með kyrrum kjörum. Inn úr klettaskútanum var dálítil rauf inn í bjargið. Þangað færði hann nú reið- tygi sín og lagðist fyrir á ný. Hníf sinn og tvær spenntar skammbyssur lagði hann við hlið sér. Hann hafði bætt á eldinn, áður en hann bjó um sig. En bjarminn af honum náði ekki að lýsa þangað sem hann lá, svo lítil hætta virtist á því, að skotið yrði á hann að nýju. Þrumuveðrinu tók smám saman að slota. Don Jaime hallaði sér upp að klettin- um og naut skjóls og hvíldar. Innan skamms tók svefninn að sækja á hann og að lokum gat hann ekki bægt honum frá sér lengur, en steinsofnaði, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að halda sér vakandi. Meðan Don Jaime svaf læddust nokkr- ir menn hljóðlega fram á milli trjánna. Þeir voru sextán að tölu. Vöxtur þeirra var kraftalegur, en göngulag og hreyfingar all- ar minntu á mjúkleika padursdýrsins. Þeir voru klæddir hjartarskinnsbuxum og baðmullarskyrtum. A fótum höfðu þeir mokkasínur, ilskó, sem Indíánar nota í frumskógunum. Á höfði báru þeir fjaðra- skraut mikið, brugðið mislitum glerperlu- böndum. Hin eirrauðu andlit voru húðflúr- uð. Þeir voru búnir löngum byssum og bog- um og báru biturlega rýtinga í beltum sínum. Það voru Apacha-indíánar, sem þarna komu fram úr skóginum, og klæðnaður þeirra sýndi ljóslega, að þeir voru búnir í hernað. Indíánamir köstuðu sér til jarðar, að þremur undanteknum, sem biðu við skóg- arjaðarinn. Þessir þrettán skriðu nær eld- inum, með þeirri undraverðu fimi, sem ein- kennir Indíána. Er þeir komu að bálinu, risu þeir allir á fætur og stukku léttilega yfir, og köstuðu sér síðan aftur til jarðar. Því nær sem þeir kómu hinum sofandi manni, því gætilegar fóru þeir. Að síðustu komst sá fyrsti alla leið. Hann tók aðra byssuna, sem Don Jaime hafði lagt frá sér og einhenti henni aftur fyrir sig, langt út í myrkrið. Hin byssan fór sömu leiðina. Þá spratt Indíáninn á fætur og réðst, ásamt félögum sínum, á Don Jaime. Áður en hann gat áttað sig á því, sem var að gerast, höfðu Indíánarnir dregið hann að eldinum og bundið hann á hönd- um og fótum. Don Jaime hélt fyrst, að sig væri að dreyma. En fljótlega komst hann að raun um, hvað um var að vera. Hann tapaði þó ekki kjarkinum. . „Hvenær lærðu rauðskinnarnir að ráð- ast á sinn hvíta bróður í svefni? Hvað vilj- ið þið mér? Hvers vegna bindið þið mig? Hafið þið skorið upp herör á ný?“ „Bleikskinninn spyr fleiri spurninga í einu, en rauðskinninn getur svarað á þrem- ur mánuðum“, svaraði einn Apacha-indí- áninn, sem eftir höfuðskrauti sínu að dæma leit út fyrir að vera foringi liðsins, „Apacha-indíánarnir hafa vissulega skorið upp herör, og allir hvítir menn verða upp- rættir. Þeir skulu hverfa eins og snjór f jallanna fyrir sólinni“. „Veslings Dolores", stundi Don Jaime, „hvað verður nú um hacienduna". „Hvað segir bleika andlit?“ spurði höfð- inginn. Don Jaime horfði í kringum sig. Hann sá grimmdina og blóðþorstann skína úr svip böðla sinna. Þar var enga linkind að finna, og hann bjóst við dauða sínum á hverri stundu. En hann hét því, að hann. skyldi sýna þessum blóðþyrstu villimönn- um, að hvítir menn væru ekki síður hug- rakkir en rauðskinnar. Hann svaraði því hæðnislega:

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.