Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 43

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 43
K Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 37 an mig á hestinn. Síðan förum við niður að Colorado,“ sagði Gomez. „Colorado,“ spurði Banderas undrandi. „Já, því að ég efast ekki um, að þessir Þrír indíánar eru ekki einir á ferð í þessum hluta frumskógarins. Senriilega er skógur- inn fullur af þessum óþjóðalýð.“ „En gegn hverjum er þessi herför haf- in?“ „Hvernig ætti ég að vita það? Sennilega er árás á hacíendu del Rodrigues yfirvof- andi.“ „Það verður að koma í veg fyrir það.“ „Hvernig?“ „Ég mun athuga það mál nánar. En nu verðum við fyrst og fremst að komast héðan hið skjótasta.“ Þeir félagar hjálpuðust að við að koma Zurdo á bak hesti1 Gomezar. Síðan steig hann sjálfur á bak. Banderas steig líka á bak sínum hesti, og þeir keyrðu reiðskjót- ana sporum í áttina til Coloradofljótsins. Framhald. Richard Connell: Vinur Napoleons. í allri París var enginn maður sælli en Eaðir Chibon. Hann hafði yndi af vinnu smni — það var ástæðan. Aðrir mundu ef ríl vill segja — og sögðu raunverulega — þá atvinnu vildu þeir ekki taka að sér fyrir nokkra peninga, nei, ekki fyrir tíu Þúsund franka eina einustu nótt. Það riiundi gera þá gráhærða og gefa þeim var- anlega gæsahúð um allan kroppinn. Að slíkum mönnum brosti Faðir Chibon full- Ur meðaumkunar. Hvaða skynbragð báru Þeir á æfintýri. Faðir Chibon lifði í heimi asfintýra og kynjasagna. A hverju kvöldi talaði hann í trúnaði Vlð Napóleon, við Marat og Byltingarfé- hans, við Carpentier, sem enn var uPpáhalds hnefaleikari Frakka, og Cæsar, við Victor Hugo og Lloyd George, við Eoch og Bigorre, morðingjann, sem með hinni ófarsælu tilhneigingu sinni til að búa til kjöt í karry úr kvenfólki, hafði orðið fallöxinni að bráð; við Lúðvík sextánda og VLadame Lablanche, sem drap ellefu eig- lrirnenn sína á eitri og var í þann veginn að fylla tylftina, þegar lögreglan greip hana; við Maríu Antoinettu og ýmsa kristna píslarvætti, sem lifðu í sælli undir- gefni í raflýstum katakombum undir gang- stéttum Boulevard des Capucines, í hjarta Parísarborgar. Þau voru öll vinir hans og hann hafði á takteinum orð og gamanyrði handa sérhverju þeirra, þegar hann á næt- urgöngu sinni þvoði andlit þeirra og þurrk- aði rykið úr eyrunum, því að Faðir Chibon var næturvörður í Pratoney-safninu — heimurinn í vaxmyndum. Aðgangur einn franki. Börn og hermenn hálft gjald. Taugaveiklaðar konur fara inn í ógnar- salinn upp á eigin ábyrgð. Menn eru beðn- ir að snerta ekki vaxmyndirnar og taka ekki hunda með sér inn á safnið. Hann var búinn að vera svo lengi á Pra- toney-safninu, að hann var sjálfur eins og vaxmynd útlits. Gestir héldu ósjaldan að hann væri ein af myndastyttunum og ráku í hann fingur eða göngustaf. Hann leiðrétti ekki misskilning þeirra. Hann bærði ekki á sér við snertinguna; hann var hreikinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.