Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 44

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 44
38 VINUR NAPÓLEONS N. Kv„ af að vera talinn einn af íbúunum í heimi vaxmyndanna, sem í hans augum var vissulega miklu raunverulegri en heimur hinna holdi klæddu manna. Kinnar hans voru eins og litlu rauðu vaxkúlurnar, sem notaðar eru sem borðskraut, augun hnött- ótt og útstandandi og hárið hvítt og slétt eins og hárkolla. Hann var lítill vexti, með feiknamikið skeifulagað yfirskegg og líkt- ist hann einna mest dverg, sem er að fara á grímudansleik dulbúinn sem rostungur. Börn, sem sáu hann trítla um dimma gangana, sem lágu inn í katakomburnar, þóttust viss um, að hann væri ljóti karl- inn. Viðurnefnið „Faðir“ hafði hann fengið í heiðursskyni fyrir að hafa unnið á safn- inu í tuttugu og fimm ár. Hann var ógiftur og svaf í litlu skoti á safninu, rétt hjá róm- verska leiksviðinu, þar sem pappaljón og tígrisdýr gæddu sér á kristnum píslarvott- um. Á næturnar, þegar hann var að þurrka rykið af ljónunum og tígrisdýrunum, á- vítaði hann þau harðlega fyrir skort þeirra á góðum smekk. „Svei,“ sagði hann, og snoppungaði stærsta ljónið, sem af mikilli alvöru reyndi að rífa í sig gamalmenni og barn samtímis, „þér eruð ljóta svínið! Eg blygðast mín yðar vegna, barnaæta! Þér munið fara til helvítis fyrir þetta, herra Ijón, það getið þér reitt yður á. Herra Satan mun steikja yður eins og egg. Illvirki, morðingi, blóð- suga —“ Faðir Chibon laut niður að gamla písl- arvættinum, sem lá undir klóm ljónsins með örvæntinguna uppmálaða á andlitinu og hvíslaði að honum í blíðum huggunar- róm: „Þolinmóði, hughrausti vinur. Það tekur ekki langan tíma að vera étinn upp til agna, og minnist þessa: Góður guð mun taka yður til sín upp til himna, og þar munið þér, ef þér viljið, geta borðað Ijón á hverjum degi. Þér eruð heilagur maður, Phillibert. Þér verðið án efa sankti Philli- bert, og þá munið þér hlægja að ljónum!“ Phillibert var nafnið, sem Faðir Chibon hafði gefið hinum virðúlega píslarvætti; hann hafði gefið þeim öllum nöfn. Þegar hann hafði hughreyst Phillibert, þurrkaði hann varlega rykið af feita vaxbarninu, sem ljónið var í þann veginn að gleypa. „Vertu hughraustur, veslings litli Jak- ob,“ sagði Faðir Chibon. „Það er ekki öll- um börnum gefið að verða ljóni að bráð, og það fyrir svona góðan málstað. Gráttu ekki, Jakob litli, og mundu, að þegar þú kemur ofan í maga ljónsins, þá skaltu sparka af öllum mætti. Þá verður Ijónið veikt í maganum. Heldurðu að það verði ekki gaman, Jakob?“ Þannig hélt hann áfram vinnu sinni, spjallaði við þau öll, því að honum þótti vænt um þau, jafnvel, Bigorre, morðingj- ann og alla hina íbúana í ógnarsalnum. Hann ávítaði glsépamennina fyrir þær sorglegu tilhneigingar, sem leitt hefðu þá í glötun og varaði þá eindregið við að sýna nokkuð slíkt hér í safninu hans. Hann átti auðvitað ekki safnið. Eigandinn var herra Pratoney, hálslangur og raunamæddur eins og marabu-storkur. Hann sat við miðasölugluggann og tók við peningunum. En þó að safnið bæri að lögum nafn herra Pratoney, þái var Faðir Chibon ótvírætt konungur í hinu litla vaxríki sínu á næt- urnar. Þegar síðasti gesturinn var farinn og dyrnar lokaðar, fór Faðir Chibon að heilsa upp á þegpa sína. Yfir hljóða salina kall- ar hann til þeirra kveðjuorðum: „Halló! Bigorre, gamli þorpari, hvernig gengur það? Og þér frú María Antoinette, skemmtið þér yður vel í dag? Gott kvöld herra Cæsar; er yður ekki kalt í þessum fötum? Og herra Charlemange, ég vona að heilsan sé góð, eins og venjulega?“ Bezti vinur hans var Napoleon. Honum geðjaðist vel að hinum, en Napóleon elsk- aði hann. Vinátta þeirra var byggð á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.