Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Síða 47
N. Kv. VINUR NAPÓLEONS 41 lings drengurinn! Vesalings drengurinn!“ sagði hún í sífellu. „Ó, hvað á ég að gera? Eg er í hræðilegum vanda; ég elska hann.“ j,En þér komuð ekki,“ sagði ég. „Ég gat það ekki,“ svaraði hún grátandi. „Ég bý hjá frænku minni, forríku skassi, og hún vill láta mig giftast greifa, feitum og rang- eygðum náunga, sem angar af lauk og kryddi. Frænka mín lokaði míg inni í her- berginu mínu. Og nú hefi ég misst eina manninn, sem ég elska, því hann heldur auðvitað, að ég hafi neitað sér, og hann er svo stoltur, að hann biður mín aldrei aft- ur.“ „En þér hljótið að geta látið hann vita • Það,“ sagði ég. „Ég veit ekki, hvar hánn á heima,“ sagði hún. „Og eftir nokkra daga fer frænka mín með mig til Rómaborgar, þar sem greifinn er, og ó, elsku vinur minn, vinur minn!“ — Og hún grét við öxl mér. Napóleon, hún grét vesalings litla amer- Jska stúlkan með tindrandi, dökku augun.“ Faðir Chibon fór að bursta Napóleons- hattinn. , ,,Ég reyndi að hugga hana“, sagði hann. »Eg sagði henni, að ungi maðurinn mundi areiðanlega finna.hana, að hann mundi koma aftur og leita á staðnum, þar sem Þau hefðu verið svo hamingjusöm, en ég ^rúði ekki sjálfur því, sem ég var að segja. jÞað getur verið að hann komi í kvöld', Sagði ég, ,eða á morguri. Hún beið fram að lokunartíma. Þér sáuð framan í hana, Þogar hún fór, komust þér ekki við af þeirri sjón?“ Paðir Chibon var niðurdreginn, þegar hann nálgaðist Napoleon kvöldið eftir. ,,Hún beið aftur fram að lokunartíma“, Sagði hann, „en hann kom ekki. Ég leið °nn við að sjá hana, þegar á leið og vonin varð minni og minni. Að lokum varð hún ^ara, og við dyrnar sagði hún við mig, >ef þér sjáið hann aftur hérna, viljið þér þá gera svo vel að fá honum þetta'. Hún fékk ^aér þetta spjald, Napoleon. Sjáið hvað stendur: ,Ég er í Villa Rosina í Róm. Ég elska þig. Nina‘. Veslings ungi maðurinn. Við verðum báðir að hafa gát á ef hann kemur“. Faðir Chibon og Napoleon voru á verði í Pratoney-safninu kvöld eftir kvöld. Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm kvöld voru þeir á verði. Vika, mánuður, margir mánuðir liðu, og hann kom ekki. En í staðinn komu fréttir svo hræðilegs eðlis, að Faðir Chibon fékk skjálfta og varð illt. Það átti að loka Pratoney safninu. „Það er gagnslaust,“ sagði herra Pra- toney, þegar hann birti föður Chibon þess- ar ógnarfréttir. „Ég get ekki haldið því áfram. Ég er orðinn stórskuldugur og skuldheimtumennirnir eru orðnir háværir. Menn vilja ekki lengur borga einn franka fyrir að sjá npkkrar gamlar dúkkur, þegar menn geta séð heilan her af Rauðskinnum, Aröbum, glæpamönnum og hertogum á kvikmyndum. Á mánudaginn verður Pra- toneysafninu lokað fyrir fullt og allt.“ „En, herra Pratoney,“ hrópaði Faðir Chibon skelfingu lostinn, „hvað verður um fólkið hérna? Hvað verður um Maríu An- toinette, og píslarvottana og Napóleon?“ „0,“ sagði eigandinn, „ég býst við að geta komið sumu af því í peninga. Á þriðjudaginn verður allt selt á uppboði. Einhverjir kaupa það sjálfsagt, til að bræða það upp.“ „Bræða það upp?“ Faðir Chibon titr- aði. „Auðvitað. Hvaða gagn ætli sé í þessu rusli til annars?“ „En þér hljótið þó að vilja eiga þá, ein- hverja af þeim að minnsta kosti?“ „Eiga þá? Hver skollinn, það var kynd- ug hugmynd! Hver ætli kæri sig um að eiga gamlar, skítugar vaxdúkkur?" „Ég hélt, að þér munduð vilja halda eftir að minnsta kosti einum — Napóleon t. d. — til minningar,“ stamaði Faðir Chi- bon. 6

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.