Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Page 48
42 VINUR NAPÓLEONS N. Kv „Hver skrattinn, þú hefir skrítnar skoð- anir! Að halda eftir minjagrip til minning- ar um sitt eigið gjaldþrot.“ Faðir Chibon reikaði inn í litla skotið sitt. Hann settist á rúmstokkinn og fitlaði við yfirskeggið í klukkutíma. Honum hafði sundlað við fréttirnar, og það var eins og lofttómt rúm í maganum á honum. Að lok- um dró hann trékassa fram undan rúminu, opnaði þrjár læsingar og dró sokk upp úr kassanum. Ur sokknum tók hann aleigu sína, hrúgu af stórum tíu centíma kopar- skildingum, sem hann hafði verið mörg ár að safna. Hann taldi þá vandlega, fimm sinnum, en það var sama hve oft hann taldi, það gat aldrei orðið meira en tvö hundruð tuttugu og einn franki. Hann sagði ekki Napóleon fréttirnar um kvöldið. Hann minntist ekki á það við neinn. En hann gerði sér far um að vera venju fremur glaðlegur í hringferð sinni um safnið. Hann skjallaði Madame La- blanche, frúna, sem byrlaði eiginmönnum sínum eitur, og hældi henni fyrir hraust- legt og gott útlit. Hann var jafnvel vin- gjamlegur við ljónið, sem var að éta písl- arvottana tvo. „Þegar öllu er á botninn hvolft, herra ljón,“ sagði hann, „þá býst ég við, að það sé eins rétt af yður að borða píslarvotta, eins og mér að borða banana. Sennilega þykir banönunum ekkert betra að láta borða sig, heldur en píslarvottunum. Ég hefi oft áður verið hvassyrtur í yðar garð, herra ljón, nú iðrast ég þess. Þér eruð fæddur með góðri lyst á píslarvottum, rétt eins og ég er fæddur fátækur.“ Og hann kleip varlega í pappírseyrað á ljóninu. Þegar Faðir Chibon kpm að Napóleon, burstaði hann með óvenjulegri vandvirkni. Hann nuddaði keisaranefið með votum klút og hann gætti þess vandlega að koma ekki fast við skaddaða eyrað. Hann sagði Napóleon síðustu brandarana, sem hann hafði heyrt á ökumannakaffihúsinu, þegar hann borðaði lauksúpuna þar um morgun- inn, og af því að brandarinn var ekki bein- línis heflaður, hnippti hann í síðuna á Na- póleon. „Við erum veraldarvanir, er það ekki, gamli vinur?“ sagði Faðir Chibon. „Við erum heimspekingar, er ekki svo?“ Svo bætti hann við: „Við tökum því, sem lífið sendir okkur, þó að það sé ekki allt rósir?“ Hann hefði viljað tala meira Við Napó- leon, en hann gat einhvern veginn ekki fengið sig til þess. Skyndilega í miðju glensinu þagnaði hann, flýtti sér niður í ógnarsalinn og stóð þar lengi og starði á Síamsbúa, sem stór fíll var að troða undir fótum sér. Það var ekki fyrr en morguninn, sem uppboðið átti að vera, að Faðir Chibon sagði Napóleon allt af létta. Á meðan fólk- ið var að safnast saman, skauzt hann út 1 hornið til Napoleons og lagði hendina á handlegg honum. „Nú er alvara lífsins komin til okkar, gamli vinur,“ sagði hann. „Þeir ætla að reyna að taka yður burtu. En verið hug- hraustur! Faðir Chibon bregst ekki vinum sínum. Hlustið!“ Og Faðir Chibon klapp- aði á vasa sinn, svo að glamraði í skilding- unum. Uppboðið byrjaði. Rétt við borð upp- boðshaldarans stóð maður, visinn, með gráðug augu, skítungar hendur og dem- antshring á vinstri hendi. Hjartað seig nið- . ur úr öllu valdi, þegar Faðir Chibon sá hann, því að hann vissi, að þessi maður var Mogari, aðalfornsali Parísarborgar. Uppboðshaldarinn byrjaði að bjóða upp með hásri, hirðuleysislegri röddu. „Næst kemur Cæsar, rómverska skikkj- an og skórnir fylgja með. Hvað er boðið? Hundrað og fimmtíu frankar? Það er smánarboð í rómverskan keisara. Bíður nokkur tvö hundruð? Þakka yður, herra Mogan. Cæsar, göfugastur allra rómverja, fer fyrir tvö hundruð franka. Bíður enginn

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.