Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 50

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1942, Blaðsíða 50
44 VINUR NAPÓLEONS N. Kv. ----------------—--------------7------— fengið sig til að gera það þennan dag. 1 stað þess læddist hann aftur inn í mann- laust safnið og settist niður á bekk við hliðina á Napóleon. Þegjandi sat hann þar alla nóttina, en hann svaf ekki; hann var í djúpum þönkum, og hugsunin, sem ásótti hann stöðugt, var hræðileg. Að lokum, þegar dagsbirtan fór að gægjast inn um rykuga gluggana, reis Faðir Chibon á fæt- ur einbeittur á svip, eins og maður, sem átt hefir í þungu hugarstríði, en/heíir loks tekið .mikilvæga ákvörðun. „Napóleon,11 sagði hann, „við höfum verið vinir í aldarfjórðung, og nú á að skilja okkur að, af því að svo vildi til, að ókunnugur maður átti fjórum frönkum meira en ég. Það getur verið, að það sé lög- legt, en það er ekki réttlátt. Við látum ekki skilja okkur þannig að.“ París var enn ekki vöknuð af svefni sínum, þegar Faðir Chibon læddist með stakri varkárni út á þrönga götuna framan við safnið, í áttina til hússins, sem hann leigði í. Öðru hvoru varð hann að nema staðar til að kasta mæðinni, af því að hann bar Napóleon í fanginu. Kvöldið eftir komu tveir lögregluþjón- ar og tóku Föður Chibon fastan. Mogan hafði saknað Napóleons, og hann var slægur náungi. Það var ekki nokkur vafi á, að Faðir Chibon var sekur. Þarna stóð Napóleon í horninu á herberg- inu hans og horfði hugsandi út yfir hús- þökin. Lögregluþjónarnir tróðu Föður Chibon inn í lögregluvagninn og Napóleon á eftir — sem vitni. Faðir Chibon sat í fangaklefanum skelf- ingu lostinn. í augum hans var fangelsi, dómarar og réttvísi eitthvað hræðilegt og dularfullt. Hann var að velta því fyrir sér, hvort hann yrði hálshöggvinn. Ef til vill ekki, af því að hann hafði aldrei brotið neitt af sér áður, en það minnsta, sem hann gat vænzt, fannst honum, var margra ára þrælkunarvinna á Djöflaeyjunni, og fallöxin hafði ymsa kosti fram yfir slíkt. Ef til vill yrði það bezt að verða háls- höggvinn. Ur því að Napóleon yrði brædd- ur upp. Fangavörðurinn, sem færði honum mat- inn, var kaldhæðinn bölsýnismaður. „Laglegt uppátæki,“ sagði fangavörð- urinn, „og það á þínum aldri. Þú hlýtur að vera vondur maður, að þú skulir geta fengið af þér að stela dúkkum. Hvað er nú orðið öruggt fyrir þjófum? Það má eins búast við því, að Effeltuminum verði stolið einhverja nóttina. Dúkkuþjófnaður! En það uppátæki! Við höfðum einu sinni mann hérna, sem stal strætisvagni og ann- an, sem stal akkeri af gufuskipi, og meira að segja einn, sem stal flóðhesti úr dýra- garði, en við höfum aldrei haft - neinn dúkkuþjóf! Og það dúkku með aðeins eitt eyra! Það er dæmalaust!" „Og hvað gerðu þeir við manninn, sem stal flóðhestinum?“ spurði Faðir Chibon skjál/andi. Fangavörðurinn klóraði sér í höfðinu. „Eg held, að þeir hafi soðið hann lifandL Eða fóru með hann til Marokkó? Eg man það ekki nákvæmlega.“ Faðir Chibon svitnaði. „Það vbru ákaflega brosleg réttarhöld,“ hélt fangavörðurinn áfram. „Dómarar voru Bertouf, Gobbin og Perouse — ákaf- lega skemmtilegir menn allir þrír. Þeir skemmtu sér óspart að fanganum, þeir veltust um að hlægja. Bertouf sasði: „Við verðum að vera strangir við þig, flóðhesta- þjólfur. Það verður að vera öðrum til á- minningar og varnaðar. Þessi flóðhesta- þjófnaður er orðinn helzt til tíður hér í París.“ Þeir eru fyndnir náungar, þessir dómarar.“ Faðir Chibon varð ennþá fölari. „Ógnarþrenningin?“ spurði hann. „Ógnarþrenningin,“ sagði fangavörður- inn hlæjandi. „Eiga þeir að dæma mig?“ spurði Faðir Chibon. „Sennilega,“ sagði fangavörðurinn og skrölti í lyklunum um leið og hann fór. Þá vissi Faðir Chibon að öll von var úti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.