Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Blaðsíða 14
10 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. »Rað er jeg, yðar hágöfgi.« »Hver?« »Læknirinn.« »Og hver ert þú?« spurði hann brytann. »Pað er hinn auðmjúki þjónn yðar Páll.« »Hæ, hæ! Pað er gott, að þið komuð báðir . . . Pið eruð sterkir og getið ef til vill hjálpað mjer . . . Jeg er svo máttvana . . . svo máttvana . . Hann er svo sterkur . . . alt of steikur fyrir mig.« »Hvað gengur að yður, lávarður minn?« mælti jeg og greip hönd hans. »Móti hverj- um á jeg að hjálpa yður?« Hann greip dauðahaldi í hönd mína og leit á mig svo átakanlegum angistaraugum, að jeg man þau til dauðadags. »Hann . . . hann ætlar . . . að myrða mig,« stamaði hann skjálfandi. »Myrða yður? Hver ætiar að gera það?« »Percy!« æpti hann svo tók undir í herberg- inu. Jeg sá að brytinn hrökk saman. »Percy?« mælti jeg méð spyrjandi röddu, lágt og nærri því hvíslandi. »Hver er það?« *Hann veit ekki, hver hann er! . . . Pjer vitið ekki, hver Percy er. Ó, herra minn! Jeg hjelt að þjer vissuð það.« Bretinn leit á mig biðjandi og hristi grá- hærða höfuðið. Mjer kom til hugar, að segja alla söguna, en hælti við það sökum þess, að mjer var óljóst, hvílík áhrif það kynni að geta haft á sjúklinginn í þessu ástandi. »Hver er þessi Percy?« spurði jeg þess vegna aftur. öldungurinn reis upp í stólnum, leit í augu mjer og mælti blíðlega með einhverjum krampa- dráttum í andlitinu, sem Iíktust brosi: »Percy — það er hann sonur minn.« *Og ætlar hann að myrða yður? Pví þá?« »Af því að hann er dáinn,« stundi hann. »Pað er ómögulegt, lávarður minn. Ef hann er dáinn, er engin hætta á, að hann myrði yður.« »Jú, jú, — hann fyrirfer mjer — — af þvt — — — af því jeg hefi fyrirfarið honum.« »Pað er elcki satt, yðar hágöfgi,« stamaði brytinn. »Pjer hafið ekki fyrirfarið honum.« »Ekki! — — Jú, vissulega hefi jeg gert það . . . Pað held jeg . . . Eða hvar er hann þá?« Jeg gaf brytanum bendingu um að þegja og mælti hátíðlega: »Nei, herra markí. Pjer hafið ekki gert það . . . Percy lifir. Sonur yðar Iifir.« »Lifir hann! . . . Hvernig vitið þjer það?« »Jeg lés það.« »Lesið þjer það? Getið þjer Iesið alt í and- liti mínu? Getið þjer lesið þar, að jeg hafi eigi fyrirfarið honum? . . . Einkennilegt . . . mjög einkennilegt.* Hann starði út í loftið eins og viðutan. »Hlýðið á orð mín, lávarður minn. Horfið þjer í augu mín og trúið orðum mínum,« mælti jeg fastmæltur. »Hann lifir. Pjer hafið eigi fyrirfarið honum.« »Hann lifir! . . . En hann hatar mig!« »Pað er heldur eigi rjett . . . Nei . . . því að hann elskar yður og biður fyrir yður.« Öldungurinn og brytinn litu úi sem væru þeir þrumulostnir. Loks æpti markíinn: »Hann elskar mig . . . biður fyrir mjer!« Og hann neri saman höndunum í örvæntingu. »Pá hlýt jeg að vera brjálaður! . . . Auga fyrir auga . . . Blóð fyrir blóð! Svo hneig hann út af meðvitundarlaus. Brytinn hljóp eftir köldu vatni og jeg helti styrkjandi lyfi í munn markíans. Hann fór að koma til meðvitundar, en hann mælti eigi orð. Alla nótlina sat jeg hjá honurn og hann hjelt dauðahaldi í hönd mína og slepti henni eigi fyr en dagur var á lofti. Pá sofnaði hann. Jeg skipaði brytanum að nefna eigi við nokk- urn mann það, sem skeð hefði um nóttina. Hjet hann því með tárin í augunum um leið og hann þrýsti hönd mína. Svo gekk jeg til hvílu um leið og jeg hvíslaði: »Percy, nú bjarmar sigurglampi vonarinnar fram undan.« Snemma næsta morgun, áður en jeg hafði gefið mjer tima til að líta inn til maikíans,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.