Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Page 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 13 »Jeg veit ekkert, gamli moður, — ekkerl. — Komið þjer! Við skulum fara.« Brytinn leit á mig vantrúaraugum. Þegar jeg kom inn i herbergi markíans, sat hann í stólnum, sem hann eigi yfirgaf hvorki nótt nje dag. Þegar jeg tók í hendi hans, varð jeg þess var, að hún var hlý — höndin, sem altaf haíði verið köld og skjálfandi. »Yður líður betur, lávarður minn,« mælfi jeg. »Mjer sýnist yður líða bara vel.« »VeI, — nei, ekki e n n þ á . En betur en í gær . . . Jeg hefi sofið og mig hefir dteymt . . . ekki eins og vanalega.* »Hvað hefir yður dreymt?« »Að þjer sætuð hjá mjer og segðuð mjer sögu, og að þjer . . . nei, sjáið þjer hvað blessuð sólin skín glaðlega inn um gluggann . . . að þjer þektuð Percy . . . að þjer liefð- uð sjeð hann,« »Nei, það hefi jeg ekki sagt yður,« mælti jeg. »Nei, það segi jeg ekki heldur . . . Mig var aðeins að dreyma . . . En það var fagur draumur.« Jeg þagði og virti hann fyrir mjer með með- aumkvun. Eftir litla þögn hjelt hann áfram: »Ó já, það var aðeins draumur, en jeg er glaður, þrátt fyrir það.« Aftur þagði hann um hríð og jeg sá, að kvalaskuggarnir liðu yfir andlit hans. Svo niælti hann: »Komið jojer hjerna til mín. Jeg ætla að spyrja yður tieimskulegrar spurningar. En mjer hefir komið hún svo oft til hugar, að mig !angar til að fá svar við henni. Ef ungur, hraustur maður er lokaður inni hjá vitfirring- u>n, er þá hætta á því, að hann verði sjálfur vitfirringur, ef hann er hjá þeim langan tíma?« Hann hvíslaði ofurlágt síðustu orðunum, »Nei, lávarður minn.« »Talið þjer ekki svona hátt. Pað þarf eng- mn að heyra þetta. Svo það er engin hætta á því?« Svo spurði hann eftir litla þögn: »Hafið þjer nokkurn tíma komið á vitfiir- ingahælið »Betlehem«?« »Já,« svaraði jeg. »Jeg hefi oft komið þar.« »Er ekki hræðilegt að sjá alla þá eymd?« í augum hans las jeg spyrjandi angist, eins og líf hans eða dauði væri komið undir svari mínu. »Nei,« svaraði jeg. »Pað er alls ekki hræði- legur staður. Sjúklingarnir eru huggaðir eftir föngum og hlúð að þeim eftir því scm unt er. Peir óhamingjusömu fá þar frið og margir bata.« »Svo o-o. Peir óhamingjusömu eru hugg- aðir — hlúð að þeim — þeir fá frið. — Pað er fagurt starf.« Hann dró andann tjettara, en angistin var enn eigi horfin úr svip hans. Jeg sá, að hon- um bjó önnur spurning í brjósti, sem hann álti bágt með að mæla fram. Jeg ákvað að hjálpa honum og mælti því: »Jeg hefi einnig sjeð fleiri vitfirringahæli hjer á Englandi, og mörg þeirra virtust mjer fullkomnari en »Betlehems«-spítalinn.« »Svo sem — ?« mælti hann spyrjandi og mændi augunum biðjandi. »Hvaða — hvaða hæli?« Röddin skalf. Jeg taldi nú upp mörg hinna þektustu hæla. Pau nöfn virtust engin áhrif hafa á hann. Svo mælti jeg snögglega, en í lægri róm: »Jeg hefi einnig verið í St. James.« »Hvað?« hrópaði hann og hrökk við, eins og hann hefði verið snortinn af eldingu. En brátt varð hann rólegri. Hann krosslagði hend- urna á brjóstinu. »Hafið þjer verið þar?« stundi hann loks lágt. »Já, og það all-langan tíma. Pekkið þjer hælið?« »Nei, nei, nei . . . jeg þekki það ekki.« Hann hálf-æpti orðin. »Spyrjið mig eigi . . . Pekkið þjer nokkurn þar?« »Já, jeg þekki marga. Ellington forstjór- ann . . .« »Hm . . . já , . , hm , , .«

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.