Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Side 18

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1924, Side 18
14 NYJAR KVÖLDVÖKUR. íLorensen yfirlækni, Derby,« og svo nefndi jeg marga af yfirrnönnum og læknum hælisins. »Eru margir sjúkir og óhamingjusamir þar?« »Já, fjölda margir.* »I3ekkið þjer nokkurn af þeim?« »Já, já. Jeg þekki marga þeirra. Rar er t. d. ofursti að riafni Lincoln, barón Charles, ungur málari, er heitir Kingston, leikarinn Bateman og fleiri. »Enga fleiri . . .? Ekki ungan mann . . .? Ó, verið þjer miskunnsatnur . . . Jeg hefi aldrei verið þar . . . Ungan mann, stóran og fríðan. Ó, guð minn góður!« »Jú, það er satt,« sagði jeg snögglega, eins og jeg alt í einu myndi eftir einhverju. »Pað var ungur maður þar, sem hjet Brown — byggingameistari, að jeg held — ágætismaður, fríður eins og ungur guð —.« »Nei, nei,« hrópaði hann. »Þjer þekkið hann ekki . . . Pjer þekkið hann ekki . . . Pjer hafið aldrei verið þar.« *Jeg &et fullvissað yður um, að jeg hefi verið þar,« svaraði jeg. »Ef þjer aðeins viljið nefna nafnið, þá . . .« Nafnið! Hvaða nafn? — Komið þjer nær — enn þá nær . . . alveg til mín. . . Pekkið þjer ekki — sáuð þjer ekki, uss, uss . . . ætli Moitimer sje hjerna? Pekkið þjer ekki herra Sid . .. Sid . . .« »Sidney!« hrópaði jeg. »Jú, hann þekki jeg rnjög vel.« Um leið og jeg nefndi nafnið, rak hann upp sársaukahljóð og hneig aftur á bak, fölur eins og liðið lík. Svo fól hann andlitið í höndum sjer, og jeg heyrði, að hann grjet þungan. Eftir litla stund leit hann aftur upp, brosti blíðlega til mín og þurkaði tárin úr augunum, um leið og harin mælti með veikri, en nærri því glað- legri röddu: »Ó, því hafið þjer ekki sagt mjer það áður, að þjer þektuð Percy minn ...» »Lávarður minn,« svaraði jeg. »Hvernig átti jeg að þora það, — hvernig gat jeg vonað... « »Pví ekki ? . . hefir hann sagt eitthvað um mig? Berið þjer mjer ekki kveðju frá honum?« »Kær.i markí, hefi jeg ekki þegar í gær sagt við yður: Hann elskar yður og biður fyrir yð- ur. . . Var það eigi nægileg kveðja?« »Jú, það er gott. Pjer þurfið ekki að segja meira. Jeg sjc og heyri að þjer þekkið alí ... Vitið alt, hvað jeg hefi gert, og hvernig það hefir farið með mig. Nú ætla jeg að segja yður söguna. Pað er ekkert, sem getur rjett- lætt gerðir tnínar . . . en þó þekkið þjer ekki alt. Hlýðið nú á og leyfið mjer að tala einum. Haldið þjer í hönd mína á meðan. Og ef þjer fáið viðbjóð á mjer, þá dragið hönd yð- ar brott, því að sagan, sem jeg ætla að segja yður, er ægileg. Guð veit, að jeg hefi verið syndari, en hann hefir í náð sinni leyft mjer að játa afbrot mín — hinar hræðilegu gerðir mínar — áður en jeg dey. Og þjer eigið að vera skriftafaðir minn.« Jeg settist við hlið hans og svo hóf hann mál sitt: »Jeg hefi verið dramblátur, eigingjarn og ofsafenginn. Jeg hefi aldrei elskað konu, og það er það versta, sem jeg get sagt um sjálfan mig. — Pað munu vera um 29 ár síðan — jeg var þá fjörutíu og eins árs gamall, er jeg sá dóttir undirgreifans frá Dunsdale í fyrsta sinni. Hún var þá 18 ára. — Pá var það í fyrsta skifti að tilfinningar mínar báluðu upp, tryltar og óviðráðanlegar. Pví eldri sem maður- inn er, þegar þær taka völdin af honum í fyrsta skifti, því tryltari verða þær. — Ástríðu- logarnir ætluðu að gera mig vitskertan — jeg var ekki ástfanginn, þetta var engin ást, — en jeg var viti mínu fjær af ástríðu. Hvað jeg svo gerði — hvílíkt voðaverk jeg framdi, ætla eg að hlífa mjer við að segja yð- ur frá, Pað leyt’darmál fer með mjer ígröfina. Jeg var of drambsamur til að gera hana að eigittkonu minni, því að jeg hataði að vera bundinn á nokkurn hátt,— en jeg var neyddur til þess, neyddur af ættfólki hennar, kúgaður til þess af þeirri stjett, sem við tilheyrðum. (Framh.)

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.