Trú - 01.05.1905, Side 4
20
T R Ú .
T R U
kemur út einu sinni í mánuði. Hvert blað kostar 5 aura. Argangur-
inn 50 aura hér á landi. í Ameríku 3 cent hvert blað, en 25 cent ár-
gangurinn. Borgist fyrirfram. Borgun fyrir blaðið sendist í póstávís-
unurn til S. O. Johnson. Útgefandi og ábyrgðarmaður
Samuel O. Johnson, trúboði.
Reykjavík (P. O.)
Island.
Hvíld fyrir þá þreyttu.
Moody sagði eitt sinn: „Hvaða hvíld eða næði hefir
sá, sem kristindóminn prédikar eða algerlega hreinn trúboði hér
á jörðu ? Það er ekki nein hvíld hér, því nú er sá rétti tími
fyrir stríðsmenn að vinna.
Himininn verður okkar hvíldarstaður. En nú er vinnu-
tími fyrir þá stöðugu, bænræknu og óbifanlegu verkamenn út
um allan heim til að fá sálir frelsaðar í Drottni. — Kristið
fólk ætti ekki að horfa nú eftir góðu næði hér á jörðu. —
En ef okkur þá finnst að eitthvað vilji koma okkur til að
hafa eins góðan tíma og okkar nágrannar, og okkur finst,
að við ætlum að hafa hvíld og nægati tíma, þá eigum við
ekki að fara eftir því, heldur að muna, að okkar hvíldartími
er bráðum kominn. Já, okkar stóri hvíldardagur er ekki
kominn ennþá, en látum okkur heldur bíða til þess tfma, þeg-
ar við skulum koma inn í hvfldina og hætta við okkar vinnu
hér á jörðu".
Þetta er fyrir þá, sem vilja verða hluttakandi í hinni
heilögu Jerúsalem, sem á að koma af himni niður. Já, fyrir
þá, sem hafa hinn sanna vitnisburð í sfnu hjarta um frelsi
frá allri synd. „Því fyrir blóðið og vitnisburðinn höfðu þeir
sigurinn", en eklci fyrir þá, sem unnu að sönnu um stund.
En þegar stríð og armæða kom, þá gáfust þeir upp og fóru
að draga sig aftur úr. Og ekki heldur fyrir þá, sem sýnast
fyrir mönnum, en eru allir saurugir innan. Nei, — að eins
fyrir þá, sem vilja fylgja Kristi alta leið, og taka krossinn
upp á sínar herðar, hversu þungur sem hann kann að verða,
og eru trúir alt til dauðans. Já, halelúja. Einmitt fyrir þá