Viðskiftablaðið - 01.10.1917, Blaðsíða 2
2
VlÐSKIFTABLAÐffi
VIÐSKIFTAFÉLAGIÐ.
HÉR á landi hefir lengi verið þörf á stofn-
un til þess að leysa það verk af hendi,
er þessu félagi er nú ætlað.
Það er kunnara en frá þurfi að segja,
að verzlun Islendinga er sums staðar, ef
ekki víða á landinu, til muna ábóta vant.
Verð á útlendum varningi hátt, en lágt
á íslenzkum afurðum. Vöruskortur oft til-
finnanlegur, jafnvel á nauðsynjavöru, og
fjöldi vörutegunda alveg ófáanlegur, Af-
leiðingin hefir orðið sú, að fólk verður að
sæta verri kjörum en nauðsyn ber til og
fara á mis við ýmiskonar nauðsynjar sér
til stórra óþæginda.
Vera má, að sumir telji það.hafa orðið
til bóta íslenzkri verzlun, að útlend verzl-
unarhús hafa með verðskrám og skrum-
auglýsingum gert varning sinn falan á
íslandi og á þann hátt náð í nokkur við-
skifti.
Á öðrum stað í þessu blaði er drepið
ó þá viðskiftaleid, og getum vér því verið
fáorðir um hana hér. Oss eru talsvert
kunn þau viðskifti og vitum, að rnikill
hluti þess varnings, sem þannig er boð-
inn, er „skran“ og glingur. Ágóðinn fer
út úr landinu og jafnvel ekki því að heilsa,
að póststjórnin fái einn éyri fyrir vinnuna
við að koma því til skila, innheimta póst-
kröfurnar og standa skil á andvirðinu, og
ekkert fengið fyrir kostnaðinn við flutn-
ing á þessum póstbögglum. Stjórn lands-
ins hefir jafnvel samþykt, að burðargjald
Undir slíkar sendingar skuli vera alt að
40% lægra en undir böggla, sem lands-
menn senda sjálfir milii hafna á íslandi.
Nú er þessum viðskiftum að vísu ger-
lokið sakir hafnbannsins við Norðurlönd,
og þar sem í ráði er að hækka burðar-
öyri innan landsj ætti að mega fullyrða,
að núgildandi burðargjaldsskrá milli út-
landa og íslands verði ekki látin gilda
aftur, er póstsambandið hefst af nýju.
VIÐSKIFTAFÉLAGIÐ ætlar sér að
leggja aðalstund á verzlun og hverskonar
viðskifti við fjarlæga hluta landsins. Nú
er vitanlegt, að hér í Reykjavík er ekki
einungis fjölskrúðugast vöru-úrval ó land-
inu, heldur og, að hér verða bezt kaup
ger. Vill félagið starfa að þvi, að lands-
menn allir geti gert kaup þar, sem kjörin
eru bezt.
I’yrir því tekur félagið að sér kaup og
sölu á hverri vöru sem er, og vonar að
geta gert það á viðunandi hátt.
Stefnuskrá vor er, að breyta við
viðskiftavini vora, eins og vér mundum
óska, að breytt væri við oss, ef vér vær-
im í þeirra sporum.
Framkvæmdarstjóri félagsins er hr.
Þórður Sveinsson, sem kunnugur er
verzlun og viðskiftum landsmanna.
Hér skal nánara drepið á fyrirhugaða
starfsemi.
Kaup.
Félagið útvegar landsmönnum allar þær
vörur, sem á annað borð er nokkur kost-
ur að fá. Þær vörutegundir, sem félagið
hefir ekki sjálft fyrir bendi, útvegar það
með svo góðum kjörum, sem frekast er
unt. Höfum vér þegar tryggt oss hag-
kvæm sambönd í ílestum greinum og lát-
um viðskiftavini vora að sjálfsögðu njóta
þeirra hlunninda. Þær vörur, sem mögu-
legt er að fá í heildsölu, seljum vér aí't-
ur með heildsöluverði. Með þessu móti
eigum vér að geta útvegað allar vörur
með eins góðum kjörum sem viðskifta*
menn vorir gæti beztum náð, og margar
vörutegundir með til muna lægra verði,
en þeir yrði að sæta, ef þeir gerði kaupin
sjálfir.
Ómakslaun verðum vér að reikna oss