Viðskiftablaðið - 01.10.1917, Blaðsíða 5
VIÐSKIFTABLAÐIÐ
8
Vörur.
VIÐSKIFTAFÉLAGIÐ vill þegar nota
tækifœrið til þess að vekja eítirtekt les-
anda VIÐSKIFTABLAÐSINS á þvi, að
félagið hefir hagkvæm sambönd um út-
vegun á neðanskráðum vörutegundum, í
smáum og stórum stíl, og vonar á sama
hátt að geta útvegað allar aðrar vörur,
þótt þeirra sé ekki getið sérstaklega:
Kornvötur allskonar.
Niðursoðin matvæli og ávextir.
Brauð, kex og allskonar matvæli.
Nýlenduvara allskonar.
Tóbak, vindlar, vindlingar.
Vefnaðarvara allskonar.
Fatnaður karla og kvenna, hálslín og
höfuðföt etc.
Húsgögn, gólfdúkar, ofnar, eldavélar,
lampar etc.
Ur og klukkur, skrautgripir.
Byggingarefni, málaravörur, veggfóður.
Hljóðfæri, nótur, söngvar.
Járnvörur, húsáhöld, smiðatól," sauma-
vélar, ritvélar, prjónavéiar, sláttuvélar,
skilvindur, mótorar.
Skotfæri og skotvopn.
Pappír, ritföng, áprentun.
Baðlyf.
Veiðarfæri, kaðlar, segldúkar, netjagarn.
Leirvara, glervura, postulín.
Hreinlætisvörur, sápa, sódi etc.
Reiðhjól og það sem lil þeirra þarf.
Vélaolía.
Bifreiðar.
Nauðsynjavara.
Það er ekki ósennilegt, sízt nú á tím-
um, að nauðsynjavaran sé stærsti útgjalda-
liður tlestra heimila. Það hlýtur því að
skifta miklu að sæla sem beztum kaupum
á þeirri vöru,. þótt helzt sé svo að sjá, sern
fólk íhugi það ekki svo sem skyldi. Marg-
ir halda, ab sú vara sé seld um allan
heim með svo lágu verði, sem frekast eru
föng á. Þaö er satt, að að jafnaði mun
minna lagt á nauðsynjar en glingur. Engu
að síður getur margt orðið til þess að
færa verðið um skör fram á sumum stöð-
um, svo sem óhentug innkaup, dýr flutn-
ingur og að kaup sé ger á óhentugum
tíma.
VIÐSKIFTAFÉLAGIÐ ætlar að leggja
sérstaka stund á að verzla með nauðsynja-
vöru og hefir von um að geta selt hana
og sent til fjarlægustu hluta landsins með
svo lágu verði, að ómaksins sé vert, tyrir
bændur og aðra, að grenslast eftir verð-
inu. " •
Bækur og ritföng.
Vér höfum sannar sögur af því, að olt
sé örðugleikum bundið að fá íalenzlcar
bœhur keyptar utan Reykjavíkur og að
nýjar bækur komi oft seint á markaðinn
á sumum stöðum, jafnvel löngu eftir að
ritdómar taka að birtast um þær i blöð-
unum. Ymsar bækur fást hvergi eða óvíða
á Iandinu annarsstaðar en hér í Reykja-
vík.
Þetta þykir jafn fróðleiksfúsri þjóð, sem
vorri, ilt undir að búa, en á oft óhægt
með að afla bókanna. Nú getur VIÐ-
SKIFTAFÉLAGIÐ bætt úr þessu, því að
auðvelt er félaginu að afla hverrar |>eiir-
ar bókar, sem út er gefin á íslandi. "
Látið oss vita, hverjar bækur þér viljið
kaupa. Vér skulum útvega yður þær.
Ritföng er sú vara, sem íslendingar
þurfa mjög á að halda. Þau selur VID-
SKIFTAFÉLAGIÐ, eða útvegar, góð, ódyr
og smekklega valin. Prentun bréfhausaiog
á umslög lætur félagið framkvæma vel og
snyrtilega, gegn lægsta gjaldi.