Nýja Ísland - 01.12.1904, Síða 5
51
þótt fuðri púðurkerlingar og glampi út um
hlað.
Vér fyllum allan félagssknp á framfaranna
leið,
á fundahöldum lifum vér hvert dags og
nætur skeið,
og kveðum niður kala þnnn, sem kornist
getur inn,
því kjörorð vort á hverjum fundi er bróð-
urTcœrleikinn.
Vér horfum upp um holtin vor, sem hús-
um eru skrýdd
af hugvitssmíði Völundar, og. dásamlega
prýdd;
með helgri undran horfum vór á heims-
menningar spor
í hötuðstaðnum landsins, sem er kraftur
sjálfra vor.
Vér hugsum um vor lrugvitsljós, og hvað
þau loga skært,
en Hafnarfjörður gerir oss nú lífið ekki vært,
því hann kvað vera að hugsa um að
hremma alt til sín,
sem hvorki á þó „Gutenberg" né „Thom-
sens Magasín".
Að hugsa sér hvað Hafnarfjörður hann er
orðinn stór,
já, hnokkinn sá, sem lengi var þó sultar-
krangi mjór,
ef hann sig gæfi’ að heimastjórnar hreppa-
pólitík,
þá halda surnir jafnvel að hann gleypi
Reykjavík.
En væntanlega verður það þó varla nú i ár,
því vitlausar í meira lagi reynast sumar spár.
Svo látum hann því lifa sér og leiða fólk
í dans.
Að leika sér við Slcuggasvein sé pólitíkin
hans.
Með nj'ju ári nýjan dug og nýja krafta fær*
og nýja marga loftkastala Reykjavíkurbær,
svo hræðast þarf ei Hafnarfjörð um hundr-
að næstu ár,
en livað svo þar á eftir kemur vita ei
neinar spár.
Vér óskum þess, að árið sendi oss allra
menta fræ,
að ávalt fjölgi prenturum í Reykjavíkurbæ,
að krónum safni’ og koparhlunkum kaup-
mannsstéttin prúð,
og komist upp í hverju húsi snotur sölubuð.
Plausor.
The Christian
(á ísl. kallaður „John Storm“).
Eftir H a 11 C a i n o.
Leikfélag Rej'kjavíkur hefir nú um tíma
sýnt leik þennan. Hann hefir verið vel
sóttur og mun orsökin til þess aðailega
vera sú, að hann er mjög sterkur á köflum
og tilbreytilegar sýningar í honum. En a.ftur
á móti mun mjög efasamt, hvort menn hafa
nokkurt gagn af að horfa á hann, ef til vill
hið gagnstæða. Af þessari ástæðu er lítil
ástæða til að vera Leikfélaginu þakklátur
fyrir að taka þennan leik. Hefði féiagið
getað haft von um peningalegan hag af að
taka hann, þá hefði það getað verið því til
afsökunar; en þar sem víst er, að félagið
mun ekki hafa nema skaða af að taka leik-
inn, þá er erfitt —að minsta kosti fyrirþá,
sem ekki þekkja, hvað ræður vanalega við
val á leikritunum — að sjá ástæðuna til að
taka þennan leik fram yfir svo marga. aðra.
Leikurinn er eiginlega sýning á fjórum
stéttum enskum, það er að segja, ef mað-
ur skiftir prestastéttinni í tvent: æðri og
iægri prestastétt, svo er það Robert Ure
lávarður og hans fólagar og enn fremur fá-
tæklingar í Lundúnum. í öllum þeim,