Sumarblaðið - 20.04.1916, Síða 13

Sumarblaðið - 20.04.1916, Síða 13
SUMARBLA&I& 1 Iþróttafélag Reykjavíkur Iþróttafélag Reykjavíkur var stofnað 11. marz 1907. Tildrög til stofnunar þess voru þau, að Andreas Bertelsen, sem þá var forstjóri klæðaverksmiðjunnar »lðunn«, boðaði til fundar í »Hótel lsland« öllum þeim, er mynda vildu íþróttafólag í Reykjavík. Allir þeir, sem fundinn sóttu, urðu á eitt sáttir um það, að stofna íþróttafélag hér í bænum. Áður hafði að vísu komið til mála að stofna slíkt félag, en það hafði fallið niður sökum þess, að eigi var völ á góðum íþróttakennara. En nú var sú urð úr vegi rudd, því að Bertelsen var gamall íþróttakennari og bauðst til að hafa kensl- una á hendi. Fyrsta veturinn fór kenslan fram í leikfimishúsi barnaskólans, og 5. júní 1910, þrem árum eftir stofnun félags- ins, var sýning haldin í barnaskólagarðin- um, og þótti sýningin takast með afbrigð- um vel. Var lokið á hana lofsorði i öll- um blöðum bæjarins. Úti-íþróttir voru dálítið iðkaðar og fóru þær fram úti á Landakotstúni. Að vísu var llokkurinn fámennur í fyrstu, en þar var jal'nan gleði á ferðum og framfarirnar urðu miklu meiri en búast mátti við. Flokkur þessi, þótt fámennur væri, hélt vel saman og hver hjálpaði öðrum. Árið 1910 varð félagið að sjá á bak hinum áhugasama og röska kennara sín- um. Varð hann að liverfa á brott sökum þess, að liann gerðist forstjóri klæðaverk- smiðjunnar »Gefjun« á Akureyri. En þrátt fyrir burtför hans, hélt þó félagið áfram að starfa og hafði einn bezta mann sinn til þess að stjórna æfingum. Sumarið eftir hélt U. M. F. R. iþrótta- mót og var þar lcept í leikfimi. í. R. og leikfimisflokkur U. M. F. R. keptu og lilaut í. R. verðlaunin. Síðan hefir félagið liald- ið margar leikfimissýningar og hafa þær allar l'arið vel fram. Um þetta leyti kom hingað nýlærður leik fimiskennari, Björn Jakobsson, er stundað hafði nám í útlöndum. Hann gerðist kenn- ari félagsins þá og hefir verið það síðan. Unglingadeild var stofnuð í félaginu 1913. Var aðsókn mikil og urðu mai’gir frá að hvei’fa. 1 vetur var stofnaður sérstakur flokkur fyrir karlmenn á aldrinum 30—60 ára. Ilefir félagið því starfað í vetur í þrern flokkum. Starfandi félagsmenn eru yfir 100 að tölu og hlutlausir 10—20. Félagið mundi vera miklu stæi’ra og’ öfl- ugra en það er nú, hefði það haft vistleg og rúmgóð húsakynni til þess að æfa sig i. En eins og allir vita er ekkert viðun- andi leikfimishús til í höfuðborginni. Ný orö. í sumar ætlar í. S. í. að gefa út knatt- spyrnulög. Það hefir lengi verið tilfinnan- legur skortur á slíkum lögum d islenzku. íþróttafélag Reykjavikur gaf út knatt- spyrnulög fyrir nokkrum árum, en nú eru þau lög oi’ðin á eftir tímanum. Menn hafa þvi nú um langt skeið orðið að sætta sig við að nota knattspyrnulög á dönsku, þótt ófagurt sé frásagnar. Það er alger misskilningur hjá alþýðu manna, að það sé að eins þeir, er knatt- spyrnu iðka, sem þui’fi á. knattspyi’nulög- um að halda. Allir, sem áhuga hafa fyrir iþróttinni og vilja liafa garnan af opinber- um kappleikum, eiga að kynna sér þau vandlega. Eins og menn vita, hefir með öllu vant- að íslenzk oi’ð um liin ýmsu atriði þess- arar íþróttar. Menn hafa orðið að gera sér gott af, að nota að eins útlend orð eða þá íslenzk orðskrípi, og hefir mörgum þótt slikt all-ilt. En nú mun úr þessu bætt i hinurn nýju lögurn. Þar er fjöldi af nýjum orðum. Ber að þakka Guðnx. landl. Björns- syni fyrir flest nýyrðin, seixx öll eru falleg

x

Sumarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sumarblaðið
https://timarit.is/publication/535

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.