Varðeldar - 01.01.1930, Blaðsíða 14

Varðeldar - 01.01.1930, Blaðsíða 14
12 VARÐELDAR Kveðja til skáta á ísafirði. Mig langar til að senda ykkur kveðju, til þess að láta í Ijósi vinarhug minn til ykkar, kæru skátafjelagar, og jiakklæti fyrir live duglega og vel þið hafið slarfað siðan þið stofnuðuð fjelag ykkar á Isafirði. Þið hafið átt því láni að fagna að hafa ágætan foringja og kennara, en til þess að starfið heppnist er einnig nauðsynlegt að hver einstakur drengur vinni með áhuga. Veturinn er nú á enda og hjá okk- ur islensku skátunum er oft erfitt að iðka skátaíþróttir úti, á vetrum, og eru æfingarnar þessvegna hafðar inni að miklu leyti. Þegar sumarið kemur er sjálfsagt hjá ykkur eins og öllum góðum skátum, mikil tilhlökkun til þess að nota það sem best og æfa ykkur i öllu þvi, sem þið hafið lært. Ekkert er eins holt og heilsusamlegt eins og útilegan og ferðalögin og ekkert lif eins skemtilegt eins og lifið úti í vinahóp. Þeg- ar þið hafið reynt það eitt sumar, þarf ekki að hvetja ykkur framar, þið munuð halda áfram ár eftir ár, og það gjörir ykk- ur að hraustum drengjum og þið lærið að hjálpa ykkur sjálfir, En það er annað, sem þessar útilegur og ferðalög hafa í för með sjer og það er, að ástin á föðurlandinu festist og vex hjá hverjum skáta, sem liugsar um hve gott liann á, að vera fædd- ur í landi, sem býður honum hin bestu skilyrði, sem nokkur náttúra getur boðið skáta, án þess að þeim fylgi óþægindi þau, sem eru í flestum öðrum löndum. Jeg óska ykkur, að þið verðið aðnjótandi allra þess- ara gæða í sumar. Jafnframt vil jeg minna ykkur á, að til þess að fá sanna ánægju af útilífinu, verðið þið hver og einn að keppa að þvi, að vinna þau störf, sem því fylgja með áhuga og glöðum hug. Hlifið ykkur ekki, þegar þið vinnið að einhverju verki, þótt ykkur ef til vill þyki það leiðinlegt og þótt fjelagar ykkar vinni annað skemtilegra, en Jiað sem ykkur er hoðið að vinna í Jiað skiftið. Einu sinni í hernsku skátalireyfingar- innar hjer á landi, var jeg að láta athuga hendur skátanna, sem mættu á æfingu sumardagsmorgun og fann Jiá að Jiví við einn dreng, að neglur hans voru óhreinar. Drengurinn spurði mig Jjá livernig jeg gæti lieimtað Jiað að hann væri lireinn, þegar jeg ljeti þá drasla og óhreinka sig á æfing- um úti, en svo stóð á að eftir þessa athug- un fórum við beint út á Seltjarnarnes til æfinga J)ar. .Teg svaraði honum: „Þegar þú mætir á æfingu á morgnana og kemur beint að heiman átt J)ú að vera alveg hreinn og í hreinum fötum, en þegar þú kemur lieim frá útiæfingu átt þú að vera skítugur upp fyrir liaus“. Þetta svar líkaði drengnum vel, J)ví Iiann var reglulega duglegur skáti, sem gekk rösklega að verki sínu, J)ótt hon- um ekki beinlínis væri áhugamál að eyða miklum tíma i að J)vo sjer, eða máske hefur hann álitið J)að fremur vera kven- mannsverk að hreinsa neglur. En svo bætti jeg við: „en þegar J)ú kemur heim átt J)ú sjálfur að })vo J)jer ótilkvaddur og einnig lireinsa búning J)inn en ekki fleygja hon- um óhreinum i mömmu þína“. — Dreng- ur þessi er nú orðinn fullorðinn maður og lælur ekki aðra vinna J)au verk, fyrir sig, sem hann getur sjálfur unnið til að Ijetta undir með heimilisfólkinu. Jeg efast ekki um, að })ið kæru vinir, bæði kunnið og skiljið skátalögin og breyt- ið eftir megni eftir þeim; J)ið skiljið J)ví, að Jietta sem jeg hefi sagt stendur meðal margs annars i þeim lögum. Gleðilegt sumar. Skátakveðja A. V. Tulinius.

x

Varðeldar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Varðeldar
https://timarit.is/publication/539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.