Þjóðmál - 24.01.1974, Side 12
Annar fréttapistill Sigurjóns Inga Hilaríussonar frá
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, skrifaður 17. des-
ember síðastliðinn.
Mannréttinda-
yfirlýsing Sam-
einuðu þjóðanna
25 ára
„Hver maður er borinn frjáls
og jafn öðrum að virðingu
og réttindum. Menn eru gædd-
ir vitsmunum og samvisku, og
ber þeim að breyta bróðurlega
hverjum við annan“, segir í 1.
grein mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna.
Það var hátíðleg stund á alls-
herjarþinginu mánudaginn 10.
desember, þegar þess var
minnst að 25 ár voru liðin frá
mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna. Hátíðlegur
virðuleiki hvíldi yfir öllu. Fán-
um hinna 135 þjóðlanda sem
aðild eiga að Sameinuðu þjóð-
unum hafði verið komið fyrir í
salnum og mynduðu þeir hálf-
hring. Forseti allsherjarþings-
ins setti athöfnina. Þvi næst
flutti framkvæmdastjórinn
Kurt Waldheim ávarp og minnt
ist þessa merka áfanga í sögu
Sameinuðu þjóðanna.
U Thant heiðraður
Þá skal þess getið, að vinur
okkar sem ég sagði stuttlega
frá í fyrri skrifum mínum hr.
Baroody frá Saudi Arabíu flutti
hvatningarræðu en hann mun
hafa átt þátt í að semja mann-
réttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna á sínum tíma. Honum
er mjög tamt að vitna í yfir-
lýsinguna orðum sínum til
trausts og halds þegar hann
flytur sumar af sínum eldheitu
ræðum hér á þinginu.
Við þessa hátíðlegu athöfn
var úthlutað verðlaunum m. a.
til U Thants fyrrverandi fram
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna.
Vantar ekki mikið á?
Þegar fulltrúar 135 þjóð-
landa eru samankomnir til þess
að minnast 25 ára afmælis
mannréttindayfirlýsingar Sam-
einuðu þjóðanna, hlýtur sú
spuming að vakna: Hafa þjóð-
irnar náð því marki hvað mann-
réttindi snertir, sem í yfirlýs-
ingunni er ætlast til. 1 því
f
I
sambandi skyldi hugsað til þess
sem segir í stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna, þar sem þær
hafa lýst yfir trú sinni á grund
vallaratriði mannréttinda. Á
göfgi og gildi mannsins og jafn
rétti karla og kvenna, enda
munu þær beta sér fyrir fé-
lagslegum framförum og betri
lífsafkomu með auknu frelsi
manna.
Eiturlyf jamálin tekin
fyrir.
Nú líður senn að því að 28.
allsherjarþing S'ameinuðu þjóð-
anna ljúki. Nefndarstörfum er
að mestu lokið, og málin sem
að undanfömu hafa verið rædd (
í hinum ýmsu nefndum fá loka
afgreiðslu á allsherjarþinginu
sjálfu. Mitt starf hefur aðal-
lega verið 1 3ju nefnd. Þar hafa
mörg merkileg mál verið
rædd. Rætt hefur verið um:
jafnrétti fyrir dómstólum,
stuðning við þróunarlöndin í
baráttunni gegn eiturlyfjum og
margt fleira. Fulltmar Afghan-
istan og Turky gáfu mjög
greinargóða skýrslu um eitur-
lyfjavandamálið í þeim lönd-
um, en eins og kunnugt er er
framleitt mikið af eiturlyfjum
í báðum þessum löndum. FuII-
trúi Turky hvað eiturlyfja-
vandamál hafa verið hjá þeim
árið 1912 og þó sérstaklega
þegar bannað var að selja á
frjálsum markaði. Þá byrjaði
svartamarkaðsbraskið. Fulltrú-
arnir bentu á, að eina raun-
hæfa leiðin sem hægt væri að
fara væri sú að styrkja þessar
þjóðir fjárhagslega svo þær
gætu látið þeim aðilum, sem
hefðu lífsviðurværi af sölu
eiturlyfja í té fjármuni svo
þeir gætu framfleytt sér og sín.
um án þess að þurfa að stunda
þessa óþokkaiðju. Tillaga þar
að lútandi var samþykkt mót-
atkvæðalaust. Er störfum 3ju
nefndar lauk urðu margir full-
trúanna til þess að þakka hin-
um ágæta fundarstjóra Mr.
Ynhya Mahmassani frá Liban-
on fyrir réttláta fundarstjóm
og er það mín skoðun, að þessi
virðulegi Líbanonbúi hafi rækt
fundarstjórastarf sitt 1 3ju
nefnd einstaklega vel af hendi
og kæmi það ekki á óvart þótt
síðar ætti eftir að heyrast nafn
hans þegar rætt verður um
störf Sameinuðu þjóðanna.
Matvælaráðstefna í
nóvember 1974.
Eitt af því, sem samþykkt hef
ur verið hér á allsherjarþing-
inu er, að haldin skuli matvæla
ráðstefna í nóvember 1974 í
Róm. Meðal annars verður þar
rætt um á hvem hátt, hægt
sé að auka matvælaframleiðsl-
una í heiminum og skipta mat-
vælunum jafnar þannig að
þeir sem hafa of mikið af mat
geti miðlað þeim sem lifa við
skort.
Þegar þessi mál vom rædd
á þinginu tók Gunnar G.
Schram til máls og lýsti stuðn
ingi við væntanlega ráðstefnu.
Hann notaði um leið tækifærið
til þess að sýna fram á það
hvernig Islendingar vildu með
aðgerðum slnum í vemdun
hafsvæðisins umhverfis Island
vernda fiskistofna og á þann
hátt að tryggja í framtíðinni
aukna matvælaframleiðslu, því
úr fiskimjöli mætti einmitt
vinna hin dýrmætu eggjahvítu-
efni, sem sveltandi þjóðir skorti
svo mjög. Já, það er engu tæki
færi sleppt til þess að kynna
málstað íslands og réttlæta að-
gerðirnar í landhelgismálinu.
Framhald á bls. 9
Sendinefnd tslands á 28. alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna, sem sat síðari hluta
þingsins. Frá vinstri: Jón ög-
mundur Þormóðsson, ívar Guð-
mundsson, Hans G. Andersen,
Ingvi Ingvarsson, örlygur Geirs
son, Gunnar G. Schram, Þórar-
inn Þórarinsson, Sigurjón Ingi
Hilaríusson, Oddur Ólafsson og
Jónas Árnason.