Þjóðmál - 06.02.1974, Side 5
Þ J Ó Ð M Á L
5
Vertíðarþankar
Nú er loðnuvertíðin hafin og
hefur gengið vel á þeim stutta
tíma ,sem liðin er frá því að
hún hófst, enda virðist sem nú
sé loðnuæði á öllum, ekki
minna en var þegar best lét í
sildinni. Er vel að allt gangi
sem best bæði fyrir þjóðarbúið
og útgerðina og ekki mun ein-
staklingunum af veita. Hitt er
svo annað mál að við þurfum
að veiða fleira en loðnu, en
ekki mun ganga of vel að
manna bátana, i það minnsta
ekki hina smærri, og ekkert
er að gera í frystihúsunum,
þegar togarar sigla með aflann.
Það er einnig hálfskrítið, þeg
ar stór góð skip eru látin hætta
veiðum, til að breyta þeim I
loðnuskip fyrir tveggja til
þriggja mánaða tíma. öðru
máli er að gegna með skip,
sem ekki er hægt að halda úti
og hefur verið lagt, eins og
bv. Jón Þorláksson, en þann
togara átti að selja í brotajám.
En ungir og áhugasamir menn
keyptu togarann og breyttu
honum í loðnu-skip og er ósk-
andi að sú framtakssemi eigi
eftir að borga sig. Það er þann
ig, að eitt sams konar skip
bv. Hallveig Fróðadóttir biður
eftir að fara í bræðsluofnana
fyrir lltinn pening og væri því
hugsanlegt, ef gengur vel hjá
þessum ungu mönnum, að einn
ig mætti breyta þessu skipi
á sama hátt og gert var með
bv. Jón Þorláksson. Það verður
víst ekki hjá því komist að hin
ir nýju togarar okkar skapi
hinum svonefndu nýsköpunar-
togurum sömu örlög og þeir
skópu gömlu kolakynntu tog-
urunum á sínum tíma, þ. e. að
selja þá alla í bræðslu.
Enn hefur ekki gengið vel
að selja loðnumjöl á hagstæðu
verði og munu kaupendur vera
að bíða eftir því, hvert fram-
boð verður á fiskimjöli, t.d. fer
það eftir því hvað veiðist af
ansjósu I Perú. Verði ekki mik-
il veiði hjá Perúmönnum, gæti
mjöl stórhækkað i verði. Hitt
er stórum verra ,að einhver
afturkippur hefur komið í sölu
á frystri loðnu, t.d. til Japans.
Er það mjög alvarlegt mál; það
miklar vonir, sem við höfum
bundið við þá sölu, sem vonlegt
er, þar sem verðið á frystri
loðnu er mörgum sinnum meira
á henni en mjölinu, enda
ástæða til að menn óski heldur
um tapað af mörgum góðum
og nýlegum skipum á loðn-
unni, t.d. á slðustu vertið. Þeg-
ar loðnu er dælt upp úr nót-
inni er ekki hjá því komist að
meira eða minna fari með af
sjó I lestina þrátt fyrir góðan
útbúnað. Þess vegna er hætta
á slætti I veltingi, þegar lestin
er ekki vel-full og af þeim sök-
um þarf að hafa- sérstaklega
sterk hliðarskilrúm 1 lestum,
því fái bátur á sig sjó og leggist
á hliðina, er hætt við að erfið-
lega gangi að rétta hann við,
þegar allt rennur út í aðra hlið-
ina. 1 gamla daga var það siður
gætinna manna að hafa opna
eina lúgu en fylla kassann þar
yfir til að runnið gæti niður
Árið 1970 réðist Sigfús Hall-
dórsson í að gefa út nokkur af
lögum sínum, eða um 50 tals-
ins, i vönduðu hefti, í tilefni
fimmtugsafmælis síns. Ætlunin
hafði verið að hafa eingöngu
ný lög í þessu hefti, en vegna
mikillar eftirspurnar eftir eldri
lögum, sem öll voru uppseld,
tók höfundur til þess ráðs að
í lestina úr kassanum jafnóðum
og síldin slóst til I lestinni,
þannig, að hún var alltaf full.
Mætti ekki á þessum stóru skip
um útbúa sterkan járnkassa
með loki á góðum stað þar sem
hann væri minnst fyrir yfir
boxaloki þannig að úr honum
rynni ofan I l'estina til að halda
henni fullri, þegar sígur í lest-
inni, t.d. við að sjór sigur nið
ur, og við velting.
Við, sem I landi erum og
hlustum á veiðifréttir, getum
það eitt að vona að vel veiðist,
en þó höfum við illan grun
um að loðnunni gæti orðið út-
rýmt, minnugir þess, þegar við
vorum að veiða síldina hér áður
fyrr og hvernig nú er komið
með hana. En vonandi er
þetta óþarfa svartsýni eða svo
segja fiskifræðingarnir. En
þetta sögðu þeir einnig um síld-
ina á sinum tima.
hafa þau með i heftinu ásamt
fimmtán nýjum lögum. Þetta
hefti hefur nú verið ófáanlegt
í nokkra mánuði en er nú kom
ið út í annarri útgáfu og i sama
formi og fyrri útgáfan.
Lögin fást í Hljóðfæraversl-
un Sigríðar Helgadóttur, Vestui
veri og Hljóðfæraverslun Pouls
Bernburg, Vitastíg.
Faxi skrifar:
Undir-
skrifta-
söfnunin
Skoðanakannanir eru tiltölu-
lega nýtt fyrirbæri á Islandi. All.
ur almenningur veit vart hvað
hugtakið merkir fram yfir það,
sem orðið sjálft gefur til kynna.
En nú erum við fslendingar bún-
ir að fá háskóladeild í félags.
fræðum og má því búast við að
landsmenn fari smám saman að
uppfræðast um tilgang og nota-
gildi skoðanakannana.
Allt frá því er sögur hófust
hafa einstaklingar og hópar
manna beitt aðferðum og jafn.
vel brögðum til þess að liafa
áhrif á skoðanir þess sem valdið
hafði. Ef litið er á þessa hegð-
un manna í ljósi heimspekinnar
tengist málið allt því, sem £
venjulegum skilningi kallast
stjórnmál. Hin heimspekilega
undirstaða stjómmálanna er ein-
mitt, að vemlegu leyti, tengd
skilgreiningu á valdi og frelsi.
Við tölum því um lýðræðisflokka,
sem leggja álierslu á frelsi ein-
staklingsins til athafna og hugs-
unar, og einræðisflokka, sem
leggja áherslu á sterka og afger-
andi stjórn einstaklings eða
valdahóps, þar sem gagnrýni og
andstaða við valdhafann eru úti-
lokuð. Eitt besta dæmið, sem við
höfum í dag um áhrifamátt
frjálsrar gagnrýni, kemur einmitt
frá Bandaríkjunum, þar sem
frelsi manna til orðs og athafna
er mjög í hávegum haft. Stefna
Bandarikjanna, ef utanríkis. og
hermál em undanskilin, mótast
að verulegu Ieyti fyrir þrýsting,
fjölmargra áhrifahópa innan
hinna ýmsu byggðarlaga í borg-
um og sveitarfélögum. Þessir
áhrifa- og hagsmunahópar tengj-
ast svo á ýmsan hátt milli ríkj-
anna um öll Bandaríkin. Neyt-
endasamtökin, samtök hinna
ýmsu atvinnuhópa og hópa hug-
sjónamanna, kvenréttinda og al-
mennra mannréttinda, svo nokk-
uð sé nefnt, öll þessi samtök hafa
mikil áhrif á stefnumótun í
Bandaríkjunum. Reyndar má
segja, að mikill fjöldi af stærri
og smærri áhrifahópum hafi
sterk mótandi áhrif á alla þróun
og menningu þessa stórveldis í
Vestri.
Áhrifahópar nota að sjálfsögðu
ýmsar leiðir og aðferðir til þess
að vinna að framgangi mála
sinna. Undirskriftir, bænarskjöl,
mótmælagöngur og verkföll eru
nokkur dæmi um meðul til að ná
hinum ýmsa tilgangi. í lýðræðis
þjóðfélagi er réttur fólksins
tryggður til slíkra aðgerða og
reyndar virtur og talinn sjálf-
sagður, enda þótt menn séu ekki
alltaf sammála um tilganginn.
1 einræðisríkjum er allt umrót
af þessu tagi mjög illa séð, enda
er litið á það, sem óvild í garð
þeirra, sem með valdið fara. Af
þessum sökum má einnig segja,
að stjórnendur í einræðisríkjum
séu í fastari sessi en stjórnendur
lýðræðisríkja. Velgengni og festa
í stjórn einræðisríkisins byggist
því á afdráttarlausu valdi, þar
sem gagnrýni og andstaða og þar
með aðhald fyrirfinnast ekki.
Leynilegar kosningar eru eitt
af meginundirstöðum mannrétt-
inda i lýðræðisþjóðfélaginu. 1
þeim felst virðing fyrir ákvörð-
unarrétti einstaklingsins og viður
kenning á rétti hans til stefnu-
mótunar í þjóðfélaginu.
Áður fyrr fóru kosningar fram
með handauppréttingu og þóttu
það mikil mannréttindi á sínum
tíma.
Tilefni þess, að þetta er rifjað
upp núna, er sú hin mikla undir-
skriftasöfnun, sem nú stendur
yfir hér á landi undir kjörorðinu
Varið land.
Strax eftir lok síðari heims-
styrjaldar var farið að ræða utn
framhald herstöðvarinnar í Kefla
vík. Enda þótt Iengst af hafi ver.
ið um nokkuð almenn samstaða
um þá stefnu, að hér ætti ekki
að vera her á friðartímum, hefur
vissum öflum þjóðfélagsns tek-
ist að gera herstöðvarmálið að
stóru vandræðamáli.
Meðan viðreisnarstjómin sat
að völdum var því haldið fram,
að meirihluti landsmanna vildi
her og þess vegna skyldi vera
her. Þá vildi stjórnarandstaðan
þjóðaratkvæði en fékk ekki. Eft-
ir að vinstri stjómin tök við var
sagt að herinn ætti að fara og
að meiri hluti landsmanna væri
því fylgjandi. En hvers vegna
vildi Vinstri stjórnin ekki þjóðar
atkvæði um þetta mál? Svarið
er einfallt. Vegna þess að í mál-
efnasamningi rikisstjóraarmnar
var sagt að lierinn skyldi fara á
kjörtímabilinu.
Þannig var málið aldrei kann.
að niður í kjölinn. Undirskrifta-
söfnun Varins lands er að visu
staðreynd, sem ekki þýðir að
bera á móti. Hún sýnir að harð-
snúið lið forystumanna vill her
í Iandinu. Þetta lið hefur nú grip
ið tækifærið vegna þess að skoð
anakönnun var ekki framkvæmd.
Ef á hinn bóginn skoðanakönnun
hefði verið framkvæmd, hefðu
menn ekki þurft að vera í nein-
um vafa um hvemig þjóðin stæði
í þessu máli. Nú er þetta mál
allt komið á mjög óheppilegt
stig, sérstaklega vegna þess að
undírskriftasöfnun sem þessi get
ur gefið alranga mynd af afstöðu
þjóðarinnar til þessa stðrmáls.
Eins og þessi mál hafa þróast
væri því mjög æskilegt, að fram-
kvæmd yrði almenn skoðanakönn
un í formi þjóðaratkvæðagreiðslu
á afstöðu þjóðarinnar til þessa
máls. Það mundi alla vega draga
úr þeim sleggjudómum, sem
menn láta frá sér fara á báða
bóga þessa dagana. Það kemur
siðan í hlut alþingis og ríkis-
stjórnar að taka lokaákvörðun og
það er ekki hægt að draga enda-
Iaust.
að veiða til manneldis en í
skepnufóður. Væri full ástæða
til-að við legðum meira í kostn-
að við að afla okkur markaða
á nýjum stöðum fyrir okkar
eggjahvítuauðugu fæðu, sem
hinn sveltandi heimur þarfnast
mest. En á þvl munu þó vera
margir annmarkar og þá ekki
slst okkar háa verðlag og getu-
leysi hinna til að kaupa.
Siglingamálastjóri sendi frá
sér margar varúðarauglýsingar
nú, áður en loðnuvertíðin hófst,
og sennilega full ástæða til.
Ekki veldur sá er varir, enda
heyra þessi öryggismál undir
hann. Loðnuveiðarnar eru
stundaðar á opnu hafi um há-
vetur, þegar allra veðra er von.
Það má því ekki mikið út af
bera til að illa geti farið, en
sem betur fer, höfum við slopp-
ið við manntjón, þó að við höf-
Menntamálaráðuneytið,
31. janúar 1974.
Styrkir til háskólanáms
i
Rúmensk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa is-
lenskum stúdentum til háskólanáms i Rúmeniu náms-
árið 1974-75, en til grcina kemur, aö styrkurinn verði
framlengdur til að gera styrkþega kleift að ljúka há-
skólaprófi i námsgrein sinni.
Það. er skilyrði, að styrkþegi stundi nám i rúmensku
fyrsta árið og standist próf að þvi loknu. Styrkfjárhæð-
in er 1.660 Lei á mánuði og styrkþegi er undanþeginn
greiðslu kennslugjalda.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 4.
mars n.k. Umsókn fylgi stúdentsprófskirteini á ensku,
frönsku eða þýsku, ásamt fæðingarvottorði og heil-
brigðisvottorði á einhverju framangreindra tungu-
mála.—Sérstökumsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Lausar stöður
Tvær lektorsstöður, önnur I sálarfræöi en hin i nútima-
sögu, i heimspekideild Háskóla islands eru lausar til um-
sóknar.
Laun samkv. launakerfi starfsinanna rikisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 25. febrúar n.k.
Menntamálaráðuneytið,
23. janúar 1974.
Guðmundur Bergsson.
Sigfús Halldórsson, Sigurveig Hjaltesteð, Guðm. Guðjónsson.
Sönglög Sigfúsar
fáanleg aftur