Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Side 12

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Side 12
56 Ljós og Sannleikur Esekíels: „Tel ég þér dag fyrir ár hvert“. Esk. 4, 6. Að „ein tíð, tvær tíðir og hálf tíð“ er sama sem 1260 dagar, það kemur og mjög gremilega í ljós með samanburði á Op. 12, 14. og 13, 5. en í þessum kapítula er einnig tal- að um að páfavaldið muni kúga Guðs fólk. í 1260 ár skyldi því rómversk-kaþólska kirkj- an hafa vald til að ofsækja o. s. frv. Þetta tímabil byrjaði, eins og að framan er sagt, árið 538 e. Kr. og nær þannig fram til ársins 1798, þess árs, er hinu veraldlega valdi páf- ans var hnekkt. Hinn frakkneski hershöfðingi Bertier settist um Róm og tók hana, og flutti Pius páfa VI. sem fanga til Frakklands. Síðan stóð páfastóllinn auður nokkur ár, og þegar nýr eftirmaður St. Péturs var innsettur, fékk hann ekki hið fyrra veraldlega vald páfans. Hase segir í „Kirkjusögu“ sinni „fyrir lærða skóla“ (bls. 503), að páfinn hafi neyðst til að sleppa öllum veraldlegum yfirráðum. Þannig lauk hinu veraldlega valdi páfáns, og hin andlegu áhrif hans fengu að sjálfsögðu um leið alvarlegt áfall, sem síðar hefur þó að nokkuru leyti verið bætt samkvæmt spádómi, sem finnst í Op. 13, 3. „Dómurinn mun settur verða, og hann sviftur völdum, til þess að afmá þau með öllu og að engu gera“. Dan. 7, 26. Bókaforlag S. D. A. á íslandi

x

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók
https://timarit.is/publication/555

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.