Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Síða 12
56
Ljós og Sannleikur
Esekíels: „Tel ég þér dag fyrir ár hvert“.
Esk. 4, 6. Að „ein tíð, tvær tíðir og hálf tíð“
er sama sem 1260 dagar, það kemur og mjög
gremilega í ljós með samanburði á Op. 12, 14.
og 13, 5. en í þessum kapítula er einnig tal-
að um að páfavaldið muni kúga Guðs fólk.
í 1260 ár skyldi því rómversk-kaþólska kirkj-
an hafa vald til að ofsækja o. s. frv. Þetta
tímabil byrjaði, eins og að framan er sagt,
árið 538 e. Kr. og nær þannig fram til ársins
1798, þess árs, er hinu veraldlega valdi páf-
ans var hnekkt. Hinn frakkneski hershöfðingi
Bertier settist um Róm og tók hana, og flutti
Pius páfa VI. sem fanga til Frakklands. Síðan
stóð páfastóllinn auður nokkur ár, og þegar
nýr eftirmaður St. Péturs var innsettur, fékk
hann ekki hið fyrra veraldlega vald páfans.
Hase segir í „Kirkjusögu“ sinni „fyrir lærða
skóla“ (bls. 503), að páfinn hafi neyðst til að
sleppa öllum veraldlegum yfirráðum. Þannig
lauk hinu veraldlega valdi páfáns, og hin
andlegu áhrif hans fengu að sjálfsögðu um
leið alvarlegt áfall, sem síðar hefur þó að
nokkuru leyti verið bætt samkvæmt spádómi,
sem finnst í Op. 13, 3.
„Dómurinn mun settur verða, og hann
sviftur völdum, til þess að afmá þau með
öllu og að engu gera“. Dan. 7, 26.
Bókaforlag S. D. A. á íslandi