Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Blaðsíða 82
136
Fólttga skrá og stofnaua
þeirra og lögflntning, allar brófaskriftir um fátækramálefni og viðskifti við
önnur sveitarfólög«; »hagtærir fó því, sem veitt er til ómaga og þurfamanna;
semur um meðgjöf með ómögum og annast útgjöld fátækrasjóðs; hefir á
hendi umsjón með húsmensku og lausamensku«.
Þessir bæjarfulltrúar eru nú í nefndinni: yfirdómari Kristján Jónsson
formaður; Hannes Hafliðason; Jón Magnússon; Ólafur Ólafsson; og Sighv.
Bjarnason. Dómkirkjuprestur het'ir og sæti og atkvæði á fundum nefndar-
innar, þá er ræða skal um meðferð á styrk úr Thorkilliisjóði, svo og um
hvert annað mál, er snertir kenslu og uj)peldi fátækra barna.
Nefndin á reglulegan fund með sér 2. og 4. hvern fimtudag í mánuði
hverjum, í bæjarþingstofunni.
Formaður nefndarinnar sinnir fátækrastyrksmálaleitunum m. m. heima
hjá sór, Pósthússtræti 11, hvern virkan dag kl. 9—10 og 4—5.
FÁTÆKRAFULLTRÚAR eiga að »hafa sórstaklega umsjón með sveitar-
ómögum og þurfamönnum, einkum hver í sínu hverfi, hafa nákvæmar gætur
á högum þeirra, heimilisástæðutn og háttalagi, og stuðla að því, að þurfa-
menn noti efni síti með sparnaði og forsjá, leiti sór atvinnu eftir megni, og
kosti kapps um að bjarga sér og sínurn sem mest af rammleik sjálfs sín.
Styrkbeiðni þurfamanns verður að jafnaði eigi tekin til greina, nema fá-
tækrafulltrúinu í hans hverfi styðji hana, og má ávísa honum styrknum til
hagtæringar fyrir þurfamanuinn, ef ástæða þykir til. Fátækrafulltrúar skulu
og gjöra sór far um, að afla nákvæmra skýrslna um aðkomna þurfamenu,
er orðið hafa öðrum sveitum til þyngsla, eða hætt er við, að eigi geti liaft
ofan af fyrir sór í kaupstaðnum. Fátækrafulltrúar koma á fund fátækra-
nefndarinnar svo oft sem hún óskar þess«.
Þessir eru nú fátækrafulltrúar, hver í sínu nágrenni:
Arinbjörn Sveinbjarnarson bókbindari (Laugavegur 41).
Bjarni Jóusson trósmiður (Klapparstígur 1).
Davíð Jóhannesson (Bókhlöðustígur 4).
Guðmundur Þorkelsson (Pálshús).
Jón Eyólfsson kaupm. (Laugavegur 5V).
Ólafur Pétursson (Vesturgata 52).
Jón Tómasson (Grímstaðaholt).
Samúel Ólafsson söðlasmiður (Laugavegur 53 A).
Þórður Narfason trósm. (Nýlendugata 23).