Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Blaðsíða 85
Fólaga skrá og stofnana
139
Enn fremur er í félaginu til yfirdeildir (yfirstúkur) fyrir tiltekin svæSi.
Ein þeirra hefir aðsetu í Reykjavík og heitir:
TJ m d æ m i s s t ú k a nr. 1. Hún var stofnuð 1890 og er formaður í
henni Pótur Zophoníasson og ritari Jóhann Kristjánsson. Fólagar eru full-
trúar úr undirstúkunum.
Loks hefir yfirstjórn alls fólagsins á landinu aðsetu í lteykjavík og
nefnist:
Stórstúka í s 1 a n d s, stofnuð 24. júní 1886. Formaður (stórtemplar)
Þórður J. Thoroddsen, læknir og bankagjaldkeri; ritari (stórritari) Borgþor
Jósefsson; 7 aðrir eru auk þeirra. í stjnrnarnefndinni.
Félagið á samkunduhús, er ieiot var 1887 við Vonarstræti.
HAFNARNEFND, er í eru bæjarfógeti (formaður) og bæjarfulltrúarnir
Hannes Hafliðason og Tryggvi Gunnarsson, hefir á hendi umsjón og stjórn
hafnarmálefna. Hún á meðal annars »að sjá um, að mannvirkjum þeim, er
við höfnina eru og áhöldum þeim, er þar til heyra, só viðhaldið og þau
endurbætt«.
HAFNARSJÓÐUR Reykjavíkur nemur 73,200 kr.
HAFNSÖGUMENN í Rvík eru þcir Helgi Teitsson og Þórður Jónsson
(Ráðagerði).
HEGNINGARHÚSIÐ í Rvík (Skólavörðustíg 9) var reist 1872 af ísl.
8teini. Það er hvorttveggja, gæzlufangelsi fyrir Rvík, og betrnnar- og tyft-
unarhús fyrir alt landið. Húsið er virt á 30,900 kr. Faugavörður Sigurður
Jónsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN fluttist hingað 1895. Ilann hefir aðsetu í
Kirkjustræti 2, og hefir þar guðrækilegar samkomur. — Tala hermannanna
á laudinu um 70, flest innlent fólk. Auk þess deild á ísafirði og önnur á
Fellsströnd. Yfi: maður er J. Pedersen adjutant. F e r ð a m a n n a h æ 1 i hefir
og herinn hór f »kastala« sínum, þar sem veitt er ákaflega ódyr gisting.
HJÚKRUNARFÉLAG REYKJAVÍKUR, stofnað 8. apríl 1903, með
þeim tilgangi, »að hjúkra sjúklingum í bænum, einkum fátækum, sem ekki
þiggja af sveit« — »með því að halda á sinu kostnað æfðar hjúkrunarkonur,
eina eða fleiri, eftir því sem efni leyfa og þörf gerist«. Minsta árstillag 2
kr. Fólagatal um 150. Sjórn: síra Jón Helgason prestaskólatennari (form.),