Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Side 83
Félaga skrá og stofnana
137
FISKIMANNASJÓÐUR KJALARNESÞINGS, stofnaður 1830 »handa
ekkjum og börnum druknaðra fiskimanna fra Reykjavík og Gullbringu- og
Kjósarsýslu, nam í síöustu árslok um 13,800 kr. Stjórnendur bæjarfógetinn
í Reykjavík, dómkirkjuprestur, prófasturinn í Kjalarnesþingi, sýslumaöur í
Gullbringu- og Kjósarsýslu og 2 menn kjörnir.
FISKIMATSMENN: Ámundi Ámundason (Vesturg. 26), Torfi Þóröarson
(Hliðarhú), Steingrímur Jónsson (Klöpp), Guöm. Gissursson (Lindarg. 13),
Jón Magnússon (Bræðrab.stíg 15), Ólafur Björnsson (Bakki). Yfirfiskimats-
maður Þorst. Guðmundsson (Þingholtsstr. 13).
FJÁRHAGSNEFND, bæjarfógeti (form.) og bæjarfulltrúarnir Halldór
Jónsson og Kristján Jónsson, »veitir forstöðu öllum fjárhag bæjarins, býr
undir áætlun, annast reikninga, áv/sar öll útgjöld, sór um stjórn fóhirðis á
bæjarsjóði« o. s. frv.
FJÖLNIR, skemtifólag m. m., stofnað 18. nóv. 1904 meö þeim tilgangi,
»að skemta fólagsmönnum og jafnframt glæða áhuga þeirra á bókmentum
og fögrum listum«. Fólagsárið er frá 1. október til 30. apríl; árstillag 5 kr.
Fólagatal 68. Formaður Guðm. Finnbogason oand. mag.
FORNGRIPASAFNIÐ, stofnað 24. febr. 1863 til að »safna saman ís-
lenzkum fornmenjum á einn stað / landinu«. Gripirnir eru nú orðnir um
5100. Safnið hefir húsnæði / Landsbankahúsinu (Austurstræti 11) uppi og
er almenningi til sýnis kl. 11—12 miðvikudaga og laugardaga, og á sumrum
auk þess sama tíma á mánudögum. Forngripavörður er Jón Jakobsson.
FORNLEIFAFÉLAGIÐ (Hið íslenzka fornleifafólag), stofnað 5. nóv. 1879
í þeim tilgangi, að »vernda fornleifar vorar, leiða þær / ljós og auka þekk-
ing á hinum fornu sögum og siðum feðra vorra«. Fólagatal 120; árstillag
2 kr. (æfitillag 25 kr.); sjóður 850 kr. Form. Eiríkur Briem prestaskóla-
keunari.
FllAMFARAFÉLAG REYKJAVÍKUR, stofnað 5. jan. 1889 til »að auka
áhuga á sjávar- og landvinnu og ýmsu öðru, sem miðar til hagsmuna jafnt
fyrir einstaklinginn sem þjóðfólagið í heild sinni«. Félagsmenn um 200;
árstillag 1 kr.; form. Tryggvi Gunnarsson.
FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN í Roykjavík var stofnaður 19. nóvember
1899, með þeim tilgangi að »efla og útbreiða frjálsan kristindóm«. Tala
safnaðarmanna alls rúm 3000. Fjarframlög óákveðin, en eittlivað eru allir