Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1934, Blaðsíða 472
434
flytja eftir götunni sjálfri, og skal svo um þá búið, að engin hætta stafi af
þeim. Hlaðnar byssur má ekki bera á götum bæjarins, eða annarsstaðar á alí
mannafæri. Byssur skal ávallt bera þannig, að opið viti upp.
15. gr. Á almannafæri má eigi leggja eða setja neitt það, er tálmai' um-
ferði.mi. Bifreiðár, vagnar, hjólbörur og sleðar mega ekki standa á götum
lengur en nauðsynlegt cr til að fylla þá og ta)ma, og aldrei á gangstéttum.
Bæjarstjórn ákveður í samráði við lögreglustjóra, hvar á götum eða torgum
standa megi vagnar eða bifreiðar, sem notaðar eru ti! fólks- eða vöruflutninga,
og setur sérstakar reglur J>ar að lútanái. Má í þeim reglum ákveða gjald í bæj-
arsjóð fyrir bifreiðarstæði.
16. gr.* Á almannafæri má eigi vinna neina þá vinnu, er hindrar umferðina
eða gerir hana hættulega, t. a. m. telgja við, höggva grjót, járna hesta, gera
við bifreiðar, eða því um líkt. A almannafæri og á veggsvölum eða í gluggum,
sein vita að almannafæri, má eigi hrista gólfdúka, viðra sængurföt, hengja föt
til þerris eða annað þess konar.
17. gr. Vöruskapa, sjálfsala, gluggaskýlur, auglýsingaspjöld eða annað
þessháttar má eigi hengja utan á hús þannig, að óþægindi verða að á almánna-
færi, að dóinr' lögreglunnar. 1 opnum gluggum, sem vita að almannafæri, má
eigi lata stánda jurtapotta eða neitt það, er tjóni getur valdið, ef það fellur
niður. Hæð undir gluggaskýiur og auglýsingaspjöld, sem standa út frá húshlið
fram yfir .gangstóB eða götu, sé minnst 2.20 m.
18. gr. Eigi má fleygja glerbrotum, steinum, nöglum, hálmi, ávaxtahýði,
pappírsrusli eða öðru þesskonar á aimannafæri né lieldur skvetta þar vatni eða
öðru, er haft getur í för ineð sér hættu eða óþægindi fyrir vegfarendur.
19. gr. Foreldrum og öðrum hlutaðeigendum er skylt að annast um, að
tilhlýðilegt eftirlit sé liaft með óstálpuðum börnum, sem eru á þeirra vegum,
þegar þau eru á almannafæri. Börn vngri en 12 ára mega ekki vera á almanna-
færi seinna en kl. 22 á tímabilinu frá 16. september til 15. apríl og ekki seinna
en kl. 23 frá 16. apríl til 15. seþtembor, nema þau séu í fylgd með fullorðnum/
20. gr. Enginn má gcra skurð í gangstéttir, götur eða torg bæjarins, né
raska þeim á neinn hátt, nema hann hafi til Jiess leyfi bæjarverkfræðings og
samþykki lögreglustjóra, enda set ji hann aftur í samt lag það, sem raskað var og
lialdi því við í eitt ár eftir að umbót er lokið og tekin gild af bæjarverkfræð-
ingi. Fyrir leyfið greiðast 5 krónur í bæ.jarsjóð. S;ík verk skulu unnin þannig,
að sem minnstur farartálmi só að, og ætíð skal þess gætt, að vegfarendur séu
aðvaraðir um farartálmann með nægilega greinilegum ljósum, er loga skulu
frá því að dimma fer að kvöldi til þess b.jart er að morgni. Að öðru leyti gerir
lögreglustjóri þær ráðstafanir, er honum þykir þurfa, til að afstýra hættu
fyrir vegfarendur. Getur hann bannað umferð um götuna að nokkru eða öllu
leyti meðan á verkinu stendur, eða skipað fyrir uin, hvemig umferðinni skuli
liagað. Ef slíkt verk dregst úr hófi fram, eftir að byr.jað er á því, getur lög-
reglust’óri iátið ljúka verkinu eða set.ja götuna í samt. Jag aftur á kostnað
þess, sem verkið átti að frámkvæma. Sama gildir ef ekki er fullnægt við-
haldsskyldu.
21. gr. Þegar nýtt hús er byggt eða eldra hús rifið og byggt upp að
nokkru eða öllu leyti, er eiganda, eða þeim, sem sér um verkið, ef húsið liggur
við almannafæri, skylt að skýra lögreglustjóra frá, áður en verkið byrjar og