Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1934, Blaðsíða 485
447
einstakur maíur á löglegt tilkall til, skal upptœkur ger og renna, auk sekta,
í bœjarsjóö.
97. gr. Ef einhver lætur þaÖ ógert, sem er skylda hans samkvæmt sam-
þykktiuni, má lögreglustjóri láta framkvæma þaö, eða gera nauðsynlegar
ráðstafanir til að hindra, að vanrækslan valdi tjóni. Kostnað við þetta og
kostnað, sem leiðir af þeim ráðstöfunum, sem lögreglustjórinn gerir til að
hindra brot gagn 'samþykktinni, greiðir bæjarsjóður, en skyldur er hinn seki
að endurgreiða kostnaðinn að fullu.
98f gr. Allan kostnað, sem leiðir af framkvæmd á samþykkt þessari, og
eigi verður krafist af einstökum mönnum, grciðir bæjarsjóður.
99. gr. Með samþykkt þessari er úr gildi numin lögreglusamþykkt fyrir
Reykjavík 19. apríl 1919, og breyting á henni 16. jan. 1929, svo og öll önnur
ákvæði, sem kunna að koma í bága við samþykkt þessa.
100. gr. Samþykkt þessi öðlast gildi 1. febrúar 1930.
Samþykkt um bifreiðastæði í Reykjavík.
Samkvæmt 15. gr. lögreglusamþykktar fyrir Reykjavík, ákveður bæjar-
stjórn, að fyrst uin sinn megi bifreiðar standa á þessum stöðum í borginni:
A. Bifreiðar, skrásettar í Reykjavík.
I. Leigubifreiðar til mannflutninga.
1. A Lækjartorgi vestan og norðanvert við miðstéttina.
2. A Yitatorgi. 3. A Óðinstorgi. 4. A Hólatorgi.
Borgarstjóri og lögreglustjóri ákveða hve margar bifreiðar megi vera á
hverjum stað og skal borgarstjóri veita skriflegt leyfi fyrir hverju bifreiða-
stæði gegn mánaðargjaldi ,er greiðist fyrirfi’am til bæjargjaldkerans og sjo
goldið 25 krónur á Lækjartorgi. en 5 krónur á hinum stöðunum. Engri bif-
reið er heiinilt að hafast við á stæðunum, nema gjaldið sje áður greitt og
getur lögreglan ávallt krafist að kvittun sé sýnd.
II. Einkabifreiðar til mannflutninga.
a. Föst stæði.
1. Á Vitatorgi. 2. Á Kirkjutorgi. 3. í Vallarstræti. 4. í Thorvaldsensstræti.
Um þessi stæði gilda sömu reglur og um stæðin fyrir leigubifreiðar til
mannflutninga, en mánaðargjaldið skal vera 2 krónur fyrir hvert stæði.
b. Stæði um stundarsakir.
1. Á miðstéttinni milli Geirsgötu og Kalkofnsvegar.
2. Á Káratorgi.
3. Vestanvert við Skólavörðustíg, inilli Baldursgötu og Njarðargötu.
4. Á Lækjargötu við Búnaðarfélagshúsið.
5. Sunnanvert við Túngötu, 8 metra frá Suðurgötu að fyrstu bugðu á gang-
stéttinni við húsið nr. 2 við Suðurgötu, 2 stæði.
6. Á Ljósvallagötu meðfram kirkjugarðinum.
7. Á Blómvallagötu fyrir norðan Sólvallagötu.
8. Vestanvert á Ingólfsstræti norðan Hverfisgiitu að Sölvhólsgötu.
9. Á Lækjartorgi við stéttina meðfram bankahúsinu, 2 stæði.