Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1907, Blaðsíða 12

Ægir - 01.10.1907, Blaðsíða 12
og vera sómasanilega launaður. Hann ætti að vera vel mentaður sjómaður, kunna ensku og dönsku, og ef slikur maður væri hér gæti hann oft náð brotlegum fiskurum. Gæti hann einnig haft aðra lögreglu á hendi, en sem til íiskjar lieyrði Þjóðin heimtar betri vernd og betri lögreglu og horfir ekki í þann kostn- að, sem af þessu leiðir. Við þurfum að fá þetta, ekki bráðum heldur strax, áður en fólk fer að streyma héðan brott. Með þessari breytingu yrði stigið stórt spor, enda sjá allir, að lögregla vor er eins og hún er nú þjóðinni til minkunnar, enda er liér um bil engum lögum hlýtt. Fáist ekki innlent gufuskip er eg mjög meðmæltur þeirri uppástungu eins þingm., að íslending- ar fengju að vera á »Isl. Falk«, 2—3 menn úr liverjum hreppi, einmilt til að læra að vernda sig sjálfir«. Sjómaður. Stærsti flskihær í heimi er Grímsbýr. Árið 1790 var íbúatalan þar tæp 1000, nú eru þar 65,000 mans. Árið 1854 komu þar á land 453 smálestir af fiski, hér um bil jafnmikið og nú berst þar að dags daglega. 1882 voru þar 2 botnvörpugufuskip, nú eru þar 430. »The Fish Trades Gazetíe«. 1 Rússlandi er meir en V2 niiljón manna, sem lifa eingöngu af fiskiveiðum, svo eftir því að dæma munu margar milj- ónir manna þar hafa atvinnu við fiski- veiðar. En því miður eru engar reglu- legar skýrslur færðar yfir þetta, þó liefir maður nokkurn veginn skýrslu frá árinu 1900, og eftir því sem þar stendur voru 1,329,000 smálestir af alskonar fiski afiað- ar og fluttar þar á land. Verðupphæð er ókunnug. Mestalt af fiskinum er fengið í Hvítahafinu, Austursjónum og við strend- ur Síberíu. »The Fish Trades Gazette«. Selir og álaki’cákur (skarfar). í Dan- mörku og fleiri löndum er lögð mikil á- herzla á, að eyðileggja seli og álakrákur; verðlaun eru veitt af ríkissjóði í því skyni. Síðastliðið ár voru í Danmörku drepnir 1218 selir, og er það þó minna en árið áður, því þá voru drepnir 1523 selir als. Síðan 1890 hafa als verið drepnir í Dan- mörku 22,792 selir, sem ríkissjóður hefir borgað fyrir 68,367 kr. í verðlaun. Her- málaráðaneytið lætur í té kúlubyssur og skotfæri í þessu augnamiði fyrir lítið verð. Síðastl. ár voru drepnar 969 álakrákur og árið áður 1062, og verðlaun borguð 2031 kr. eða 1 kr. af hverri. Selirnir eru mest drepnir á sumrin, en álakrákur á veturna. »The Fish Trades Gazette«. Tvö ný fiskiveiðafélög voru stofnuð í ágústm. á Þýzkalandi. Annað í Geste- miinde með 750,000 marka liöfuðstól, en hitt í Bremerliaven með l1/* miljón marka liöfuðstól, og ætlar liið síðartalda að byrja með 14 gufuskipum. Bæði þessi félögætla sér að stunda fiskveiði í Vestursjónum og við ísland. »The Fish Trades Gazette«. Chr. Sörig frá Skaga í Danmörku liefir rekið kolaveiði á Önundarfirði eins og undanfarið. Hann fiskaði í net, sem hann lagði í firðinum og hafði til þess mótor- bát. í sumar fiskaði hann 50,000 kola, og gerir hann ráð fyrir, að veiðin sé eins mörg pd. Kolann sendi hann til Dan- merkur saltaðan í tunnum, og er þurkað- ur þegar heim kemur. Verðið á þurkuð- um kola er frá 20—25 aura pd. Prontsmiðjau Gutonberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.