Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1915, Blaðsíða 7

Ægir - 01.03.1915, Blaðsíða 7
ÆGIR 39 hefði það mark, að opna augu manna fyrir hve miklum peningum er fleygt fyrir vanþekkingu og hirðuleysi, og reyna að koma í veg fyrir að það haldist við. Alt hækkar i verði og þvi dýrara er það einnig, sem fleygt er. Heima. í »Fishing Gaselte« sem gefið er út í New-York, er getið um sallfisksfarm írá Islandi er seldur var í Ameriku, og er svo sagt, að fiskurinn hafi reynst ágæt- lega. Stórkaupmaður Carl Höepfner i Kaup- mannahöfn sendi þennan farm, voru það 4500 skp. og var hann seldur i Boston. Firmað C. Höepfner, hefir rekið versl- un á Norðurlandi í íjöldamörg ár og haít þar útgerð. Sem stendur hefir það versl- anir á Akureyri, Sauðárkróki, Skaga- strönd og Blönduósi, en auk þessa er nú firmað i þann veg að setja hjer á stofn stórsöluverslun með erlendar vörur. svo sem korn, nýlcndúvörur o. fi. og kaupir auk þess allar tegundir islenskra afurða. Mokafii hefir verið á þilskip og hotn- vörpunga þennan liðna mánuð. Má svo heita að íslensku fiskimiðin sjeu friðuð fyrir yfirgangi útlendinga það sem aí er. 4—5 úllend skip munu þó vera hjer að veiðum, en hvað er það á móti því, sem verið hefir undanfarnar vertíðir. Hinn 20. þ. m. að kveldi, hafnaði sig hjer hið nýja botnvörpuskip Ægisfjelags- ins. Skipið heilir »Rán«. Skip þetta er smíðað i Þýskalandi og er hið vandað- asta í alla staði, er raflýst, hefir yfirhit- unartæki, sem eflaust munu reynast bet- ur hjer, þar eð vjelin er til þess giörð, heldur en þar sem þau eru sett i skip löngu eftir að þau eru smíðuð. Miklar framfarir má það kalla, að á skipinu eru lifrarbræðslutæki. Tveir stórir járngeym- arar eru í kleía á þilfarinu fyrir ofan vjel- ina, lifrin látin í þá og brædd þar við gufu og síðan látið renna á tunnur. Þetta er hið fyrsta islenska botnvörpuskip, sem smiðað hefir verið á Þýskalandi, og mun eitt af beztu skipum, sem hingað hafa komið. Framkvæmdarstjóri »ÆgisfjeIags- ins« er hr. M. Th. Blöndahl i Reykjavik. Erindreki erlendis hr. Matth. Þórðar- son, er nú tekinn til slarfa — er hann búsettur í Liverpool. Hann hefir sent »Fiskifjelagi íslands« ýms skeyti og hafa mörg þeirra verið birt í »Morgunblaðinu«, og sumum slegið upp í skýrslukassa fje- lagsins í Hafnarstræti. Vjelfræðingur ólafur Sveinsson er um þesssr mundir á Seyðisfirði, og heldur þar námsskeið í hirðingu og meðferð mótora; sækja það námsskeið um 20 manns eða meir, býst hann við að náms- skeiðið verði fjörugt. Þar verða haldnir 2 fyrirlestrar á viku um almenn efni fyrir fólkið, læknisfræðislegir fyrirlestrar fyrir nemendur, og sýslumaðurinn held- ur fyrirlestra um sjórjett er viðkemur bátum og margir fleiri ætla að styðja þetta. Það mun sannast að þessi námskeið verða liin vinsælustu er fram í sækir, og eru til hins mesta gagns, — og er það gleðilegt, að almenningur er farinn að skilja það. Erindreki Matth. Ólafsson ferðaðist í byrjun Febrúarmánaðar um Snæfellsnes og stofnaði deild í Ólafsvík (20 meðl.). Fór hann á Sand og Stykkishólm. í Stykkishólmi var nýstofuð deild er hann kom þar. Sú deild heitir »Ægir« og eru

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.