Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1915, Blaðsíða 2

Ægir - 01.05.1915, Blaðsíða 2
60 ÆGIH þau mundu græða mest á þessu, en væri hann landstjórnarinnar maðnr, tel jeg víst að honum yrði meira ágengt. Þessi maður yrði að vera vel launaður, svo hann væri og yrði öllum óháður; hann kemur á staðinn til að framkvæma eitt hið þarfasta verk, til að sjá um að fyrir- skipunum sje hl^dt, en ekki til að þyggja góðgerðir; — ein hót sett í tíina á bát, getur orðið skipshöfn til lífs — og hvert mannslíf er dýrt þegar á alt er litið. — Alþingi kemur nú saman í sumar, og væri æskilegt, ef einhver vildi hreyfa þessu máli þar, ef það á þar heima. Reykjavík 21. maí 1915. Sveinbjöm Egilsson. Um bátavjelar. Á síðustu árum heíir orðið æðimikil breyting á bátaútvegi íslendinga, þar sem róðrarbátar hafa víða lagst niður, en vjela- bátar verið teknir upp í staðinn. Það er eigi furða þótt eitthvað hafi mistekist meðan verið var að koma breytingunni á, enda hefir það komið glögglega í ljós, eigi síst á vali og meðferð bátavjelanna. Má óhætt fullyrða, að í því efni liafa margir beðið tilíinnanlegt tjón fyrir van- þekkingu sína. Nokkrir hafa ráðist i að velja sjer vjel upp á eigin eindæmi, án þess að hafa nokkurt vit á því efni, en hinir munu þó vera fleiri, sem hafa leit- að sjer aðstoðar hjá umboðsmönnum, sem útvega vjelar, og má nærri geta hvernig þær hljóða. Það er hverjum manni auðsælt að þetta er mjög óheppi- legt, og harla varasamt fyrir kaupendur. Engin minsta trygging fyrir því, að menn fái bestu vjelarnar, sem á boðstólum eru, nema leitað sje álits þeirra manna er vit hafa á bátavjelum, og ekki hafa um- boð á neinni sjerstakri tegund vjela, því »það er lakur kaupmaður sem lastar sina vöru«. Það verður að krefjast þess, að upplýsingarnar sjeu frá þeim mönnum, sem vit hafa á vjelunum, og ekld hafa neinna eigin hagsmuna að gæta, er þeir gefa upplýsingarnar. Þess eru dæmi að umboðsmenn, alls ófróðir um gerð á vjelum, liafa útvegað mönnum vjelar, sem þeir voru alls ófærir að segja um að væru betri en aðrar vjelar á sama eða svipað verð. Líka er þess að gæta, að framförin í umbótum á vjelunum er mjög mikil, svo að vjelar sem áður þóttu ágætar, hafa orðið að þoka fyrír öðrum nýrri og betri. Má í þessu efni benda á vjelina Tuxham. Hún hefir verið reynd hjer og ekki náð hylli, sem eílaust kem- ur af því, að menn þekkja ekki nýjuslu gerð af henni. Jeg hef sjerstaklega kynt mjer þá gerð, og heí sannfæringu fyrir því, að hún hefir ýmsa kosti fram yfir aðrar bátavjelar, sem jeg þekki. Og með því hún hefir orðið hjer fyrir röngum dómi, sem hefir bakað hlutaðeigandi fiskimönnum skaða og óþægindi, þá vil jeg leyfa mjer að benda á nokkra kosti hennar fram yfir aðrar vjelar, sem jeg hefi fengist við. Aðalkostir vjelarinnar eru þá þessir: 1. Vjelin er svo sparsöm að hún eyðir um 40°/o minna en flestar þær vjel- ar, sem hjer eru notaðar. Hún er tvígengisvjel og brennir jarðolíu. 2. Vjelin er endingargóð vegna þess hve slitfletir eru langir eg vel slíptir_ 3. Vjelin gengur með mjög jöfnum hraða, rykkjalaust og rólega eftir vild. Er það mikill kostur ef and- æfa þarf í kviku, leggja að br}7ggju eða bóli, eða nota linuspil. 4. Vjelin er öll vel traust og 5. Hún er einföld og sjerstaklega auð- velt að komast að öllu, bæði við eff-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.