Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1916, Page 7

Ægir - 01.03.1916, Page 7
ÆGIR 35 um gang stríðsins nú þrátt fyrir hin mörgu skeyti, en við vissum þennan dag í fyrra og við vitum ekki hvar við stöndum þeg- ar hið mikla þrotabú »Evrópa« verður gert upp, þá er djarft teflt. Vonandi geng- ur það þó svo, að góðærin borgi mótor- báta íjöldann og þeir, sem nú eiga báta á floti riii sig upp. Brýn nauðsyn ætti það að vera, að hvar á landinu, sem nýjar veiðistöðvar risa upp, að þar sjeu þær liafnareglur, sem forði þeim frá yfirgangi annara og þeirri töf við vinnu, sem af slikum yfirgangi hlýst; það er það minsta sem gert verður, þar eð við getum ekki verndað landhelgina eins og Þyrfti. Hvenær verður það, að maður úr sjó- mannastjettinni nái hjer þingsetu? Slikur maður væri þinginu og þjóðinni liinn gagn- legasti. Jeg þekki mann, sem veit alt, er að fiskiveiðum lýtur og auk þess margt og margt, sem jeg er viss um að yrði þjóð og þingi til hins mesta gagns, svo maðurinn er iil, en hann er einn af þeim, sem ekki trana sjer frarn og þess vegna bendi jeg heldur ekki á hann hjer, en til þess að menn ekki haldi, að jeg sje að slá mjer sjálfum gullhamra og benda á mig, þá læt jeg þess getið, að þegar jeg var að alast upp, þá heyrði jeg aldrei talað um annað en fjárkláðann, svo fór jeg i sigl- ingar og var að þvi svalki í um 20 ár og á þvi timabili heyrði jeg mest talað um storma og kvenfólk og þegar jeg loks kom heim, þá voru menn orðnir svo lærðir í pólitik og jeg ekki lært frumatriðin, að hve mikið sem jeg hef á mig lagt, hef jeg aldrei náð þvi, sem menn kunna nú i þeirri grein, svo jeg vona að það sje sann- að að jeg er ómögulegur. Jeg læt þessa getið hjer, þótt það máske þyki óþarfi, en hjer er svo títt að óhæfir menn benda á sig til ýmsra starfa, er þeir hafa litla hug- mynd um livernig þeir eiga að leysa af hendi, og jeg hef ekki ennþá fengið þá veiki, sem Danir kalla Storhedsvanvid. Samt er jeg á þeirri skoðun, að það sje hættuminna að bjóða sig fram og komast á þing gersneyddur allri þekkingu, því þar drepur maður þó engan beinlinis, heldur en að taka að sjer t. d. vjelagæslu á mótorbát og hafa ekki haft það starf á hendi fyr — það er djarft og þar eru mannalif í veði. Sala og leiga á lóðum við aðalveiði- stöðvar landsins ætti með öllu að afnema, þegar þeir, sem vilja kaupa eða leigja eru erlendir menn. Landhelgin verður ekki varin fyrir yfirgangi, en hið þurra land mætti verja, í það minsta ekki komast lengra út á leigu- eða sölubrautina en orðið er. Rvík 23. mars 1916. Svbj. Egilsson. perí uttt JáiBnes. Ársfjórðungsskýrsla til FiskiQel. íslands. Frá Matth. Ólafssyni. Frá nýári til 28. febr. var jeg heima i Reykjavik. Jeg hafði ætlað mjer að ferðast um Reykjanesskagann og heimsækja deildir Fiskifjelagsins á því svæði. En þegar jeg var að því kominn að leggja af stað, breyttist veðrátta til hins verra, með afarmikilli fannkomu. Voru þá um tima engin tök til að ferðast á landi. En siðari hluta febrúarmánaðar brá aftur til góðviðra, sem hafa haldist til þessa dags. 29. febrúar lagði jeg af stað frá Reykja- vik. Kom jeg í Hafnarfjörð, Voga, Kefla- vik, Stafnes, Sandgerði og Garð. Vertíðin var þá byrjuð á Miðnesi og

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.