Ægir - 01.03.1916, Side 16
44
ÆGIH
Erlendis.
Fisk- og sildveiði í Noregi.
Til 4. mars liefir verið fiskað i Noregi
sem hjer segir, samanborið við síðastliðið
ár til sama tíina:
Þorskur samtals 7,782,000 stj'kki.
1915 16,451,000 —
Þar af sallað í ár 5,090,000 —
Saltað í fyrra 11,864,000 —
Lýsi í ár 11,063 tunnur
Lj'si í fyrra 16,136
Hrogn í ár
Hrogn i fyrra
12,525 —
24,717 —
Sildarverð Stettin og Hamburg:
íslensk síld ókverkuð 99 mörk lunnan.
— — kverkuð 100 —--------
Hollensk —------------133 — --
Útlit fyrir golt verð á hrognum. — Þó
hefir sardínuveiði verið lítil í seinni tíð i
Santandas og Bilbao. — Byrgðir þar fyrir-
liggjandi 900 tunnur frá fyrra ári.
Veiðarfæri örðugt að útvega í Noregi og
Svíþjóð. Vöntun á efni. Snyrpinætur engar
fram yfir það, sem áður hefir verið pant-
að. Leyfi til útflutnings á þvi sem pantað
liefir verið búist við að fáist á báðum
stöðunum.
Verðlag.
Verðið hefir verið að meðaltali i veiði-
slöðvunum frá 20—28 aura kilo, hausað
og slægt. — Verðið í fyrra 10—13 aura
lcilo hausað og slægt.
Útlit með saltfisksverð mjög hált.
Lýsi hefir verið selt hjer hæst 400 kr.
tunnan, 106 kilo — óhreinsað, gufubrætt
meðalalýsi — samkv. opinberum skýrsl-
um. Verslunarmiðill Brekhus sagðist síðast
hafa selt íslenskt gufubrætt meðalalj'si ó-
hreinsað á 325 kr. tunnuna, en lj'si með
ensku útflutningsbanni næði aðeins 270 kr.
Á íiskmarkaðinum í Bergen er þorskur
óslægður seldur fyrir frá kr. 1,75—2,50
eftir stærð, — gert ráð fyrir að lifrin sje
kr. 0,75—1,00 virði, — hrogn frá lcr. 0,35
—0,50 i hverjum fiski.
Veðurblíða nú, og úllit fyrir gott veður
fyrst um sinn, svo menn vonast eftir þol-
anlegum afla, — en beituleysi hamlar
mikið veiðinni í mörgum veiðistöðum
norður frá.
Síldarafli mjög mikill við Egersund og
Haugasund. Málið af síldinni selt frá 40—
55 kr. Tunnur orðnar mjög dýrar, fást
ekki undir 10—11 kr. stykkið. — Síðast
seklar i stórsölu, 5,000 stykki á kr. 7,50.
Um kaup á islenskum afurðum, — fiski,
lýsi og síld f. o. b. — er útlitið ekki gott.
— Norðmenn óttast að Englendingar leggi
hindranir í veginn með flutning á vörunni
frá íslandi. Ekkert boð gert ennþá i síld
fiskaða í sumar.
Futningsgjöld afskaplega há, fara altaf
hækkandi. — Skipsleiga reiknuð nú £ 2
4 sh. fyrir smálest (þyngdarmál) d. w. —
um mánuðinn, búist við að það hækki
ennþá.
Verð á skipum ávalt hækkandi. — Senr
dæmi má segja, að gufuskipið »Vaagen«,
eign Wathnes-erfingja, var i byrjun stríðs-
ins selt hjer til Bergen á 16,000 kr. — var
nú selt nýlega fvrir 342,000 kr., án þess
að gert hefði verið við það nokkuð.
Ásgeir Pjetursson kaupm. á Ej'jafirði
hefir keypt gufuskipið »Christian IX.«
Skipið er að stærð rúml. 1400 smálestir
þyngdarmál.
H.f. »Kveldúlfur« hefir keypt gufuskipið
»Mjölnir«.
Útlitið fremur óglæsilegt með flutninga
til og frá íslandi. — og verslunartálmanir
Englendinga gera verslunina mjög óvissa.
Með mikilli virðingu.
Matth. Þórðarson.
Prentsmiöjan Gutenberg.