Ægir - 01.06.1916, Qupperneq 15
ÆGIR
75
Sildaraflinn hefur verið sem hjer segir,
borinn saman við undanfarandi ár; talinn
i málurn:
1916 1915 1914 1913 1912
950,820 684,176 668,500 864,750 576,500
Allur vorsildaraflinn er talinn að nemi
rúmlega 40 milj. kr. og er það mörgum
sinnum meira en dæmi eru til áður í
sögu Norðmanna.
Verð á fiski og fiskiafurðum cr nú
eins og hjer segir:
Meðalalýsi óhreinsað er nú selt á 525
kr. tunnan. Það hefur að undanförnu
verið selt á 575 kr. lunnan en er nú
lægra, en búist er við að núverandi verð
haldist fyrst um sinn.
Annað lýsi er selt á 400 kr. til 420 kr.
eftir lit og gæðum.
Vorsild er seld á 75 kr. lunnan fisk-
pökkuð.
Hrogn, eru seld á 80 kr. tunnan, góð
vara ósorteruð.
Verð það sem hjer um ræðir er mið-
að við vöru i stærri hlutum i vöru-
geymsluhúsum i Bergen.
Verð á fiski i nyrðri veiðistöðvunum i
Noregi hefur verið frá 21—40 aur. kil.
slægður fiskur. Lifur 1,20—2,00 kr. líter,
og hrogn 15 aura líter.
í Lofoten hefur verðið verið ennþá
hærra. Fiskur 35—40 aura kil., lifur
1,40-2,40 kr. liter.
Saltfisksmarkaðurinn er ekki mjög mik-
ill nú sem stendur. í Kaupmannahöfn
eru byrgðirnar að smáminka, þvi lítið
berst að enn þá. Verðið er skrásett sama
og áður. Norðmenn hafa selt mikið af
íiski sinum söltuðum til Englands og
Þýzkalands og er t. d. mælt að Englend-
ingar eigi þar fisk- og síldarbyrgðir liggj-
andi fyrir um 40 mill. kr. Er talið að
Englendingar hafi gert þetta til að minka
innkaup Þjóðverja. Nokkrár hleðslur aí
saltfiski hafa verið sendar' lil Grímsby
fyrir reikning Englendinga sjálfra frá
Noregi og selst um 40 aura kiló en
þann sama fisk hafa þeir jafnvel orðið
að aupa i Noregi fyrir um 80—90 kíló
svo ekki er lítið lagt í sölurnar til að
ná fæðunni frá munninum á Þjóðverjum.
Þann 20. þ. m. segja Norsk Handels-
tidende að boðið sé 90 aura i kíló sall-
fisks i Aalesund en seljendur vilja ekki
selja fyrir það verð.
Verðið á fiski i hinum suðlægari lönd-
um helst stöðugt hátt og byrgðir mjög
litlar.
Verð á sild i Hamburg hefur nú stöð-
ugt verið 111 mörk tunnan, islensk sild.
Útlendar vörur fara hækkandi.
Salt i Bergen selt 7,50 kr. hl.
Kol i Leith 32/6 sml.
Flutningsgjöld svipuð og siðast.
1 dag hefur fiskur frá Reykjavik, sem
kom með s/s Gullfoss verið seldur hjer
á staðnum, saltufsi kr. 78,00 pr. skipp.
og saltþorskur kr. 96,00 pr. skippund.
Ný lög og tilgkipanir.
Nærfell daglega eru birt ný lög og
lyrirskipanir snerlandi verslun og við-
skifti, bæði af hernaðarþjóðunum og eins
af þeim sem hlutlausar eru. Þannig cr
hinn 9. apríl auglýsl tilkynning frá utan-
rikisstjórninni þýzku um að sild og allar
aðrar tegundir af saltfiski sem seldar eru
til Þýzkalands skuli sendar til »ZentraI-
einkaufsgesellschaft« Berlín. Ennfremur
er bannaður flutningur á þessum vör-
um gegnum Þýzkaland til sölu annar-
staðar nema með sjerstöku leyfi þess.
Norðmenn hafa einnig með sjerstökum
lögum bannað útflutning og sölu á alls-
konar tegundum af fiskilýsi frá Noregi,