Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.1916, Qupperneq 5

Ægir - 01.07.1916, Qupperneq 5
9. árg. ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS Reykjavik. iúTTT916. | Nr. 7. Bráðabirgðarlög um heimild handa la.ndsstjórninni til ráöstafana til tryg-gingar aöílutningum til landsins. Vjer Cliristian hinn Tíumli, af guðs náð Danmerkur konungur, Vinda og Gauta, hertogi í Sljesvik, Holtsetalandi, Stórmæri, Fjettmerski, Láenborg og Aldinborg. Gjörum kunnugt: Stjórnarráð Vort fyrir íslandi hefur þegnsamlegast tjáð Oss, að nauðsynlegt sje nú þegar að gera ýmsrar ráðstafanir til þess að inn- llutningur varnings til íslands frá Bretlandi lieftist eigi með öllu, og verðum Vjer því að telja brýna nauðsyn til þess að gefa út bráðabirgðalög samkvæmt 11. gr. stjórnarskrárinnar, um heimild handa landsstjórninni til ráðstafana til tr^'ggingar aðtlutningum til landsins. Því bjóðum Vjer og skipum: 1. gr. Ráðherra Islands veitist heimild til að setja með reglugjörð eða reglugjörð- um þau ákvæði um verslun og siglingar til og frá landinu, er nauðsynleg þykja til þess að tryggja aðílutninga til þess. í reglugjörð má ákveða sektir íyrir brot og meðferð mála út af brotum gegn henni. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Eftir þessu eiga allir lilutaðeigendur að hegða sjer. Gefið á Sorgenfri höll, 24. mai 1916. Undir Vorri konunglegu hendi og innsigli. Christian R. (L. S.) Einar Arnórsson.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.