Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1916, Blaðsíða 7

Ægir - 01.07.1916, Blaðsíða 7
ÆGIR 83 5. gr. Með mál út af brotum gegn reglugjörð þessari skal fara sem almenn lög- reglumál. Áður en dómari úrskurði sektir, án þess að niál fari undir dóm, skal málið borið undir stjórnarráðið. 6. gr. Reglugjörð þessi öðlast gildi þegar í stað. í stjórnarráði íslands, 30. júní 1916. í fjarveru ráðherra Kl. Jónsson. Jón Hermannsson. Reglugjörð um viöaixlca. viö reglugjörö 30. jiíní 1916 um rfiö.stafa.nir til aö tryggja verslun landsins. Samkvæmt heimild í bráðabirgðalögum 24. maí 1916 eru hjermeð sett eftirfarandi viðaukaákvæði við reglugjörð 30. júní 1916. 1. gr. Bannað er að hlaða í skip á íslenzkri liöfn fisk og fiskafurðir, þar á meðal síld, síldarmjöl og síldarlýsi, ull, gærur og saltað kjöt, án þess að varan hafi verið boðin til kaups umboðsmanni Breta hjer á landi, nema liann hafi neitað að kaupa eða liðnir sjeu meira en 14 dagar frá framboðinu, án þess að hann hafi svarað. Hver sá, er hlaða lætur ofannefndar vörur, svo og skipstjóri, er við þeim tekur, án fullnægju framannefndra skilyrða, skal sekur um 200—10000 kr. til landssjóðs. Skip og farmur er að veði fyrir sektunum. 2. gr. Banuað skal að afgreiða sldp frá íslenzkri höfn, nema lögreglustjóra eða umboðsmanni hans haíi verið sýnd skilriki fyrir því, að skilyrðum, er i 1. gr. getur, um framboð til umboðsmanns Breta hafi verið fullnægt.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.