Ægir - 01.07.1916, Blaðsíða 11
ÆGIR
87
fjelög með 149 veiðibátum, 23 bræðslu-
stöðvar i landi og 36 stór skip er bræddu
lýsið um borð. Nú eru aðeins 15 fjelög
eftir. Eflaust hefur þetta þau áhrif, að
verð á lisi lækkar ekki fyrslu árin ofan
i það verð sem var fyrir striðið. Síðan
um nýjár hefur hvalveiðaflotinn minkað
uin 53,000 smálestir.
Selveiðin við New-Foundland hefur
verið mjög góð í vetur; af 12 skipum sem
tóku þátt í veiðinni voru 9 komin til
hafnar 15 maí og höfðu fengið afla fyrir
589,472 doll. eða að meðaltali 73,683 doll.
hvert skip. Lýsið er selt til Englands.
Hjer fer á eftir skýrsla yfir síldveiði
Norðmanna i Norðursjónum síðastliðin
13 ár, ásamt verðmæti als aflans og
meðalverð á hverri tunnu 90 kíl. í afla-
skýrslunni er ekki meðtalið tunnur og
salt, en hæfilegt er að áætla það kr. 7,50
sem bætist þá við á hverja tunnu.
Ar. Tunnur. Verö kr. Hvcr tn. kr. Kil. kr.
1915 1,601 45,920 28,69 0,41
1914 1,842 27,000 14.66 0,25
1913 9,127 155,200 17,04 0,27
1912 21,384 256,608 12,00 0,2172
1911 11,852 124,446 10,50 0,20
1910 19,110 191,000 10,00 0,197=
1909 39,658 325,000 8,19 0,17
1908 10,840 88,000 8,18 0,17
1907 93,150 675,000 7,25 0,16
1906 67,860 320,000 12,08 0,2172
1905 32,250 380,000 11,78 0,21
1904 16,470 160,000 9,70 0,19
1903 16,700 220,000 13,16 0,22
Af þessari löflu sjest meðal annars að
meðalverð á sild síðastliðin 12 ár —
þegar frá er talið siðastliðið ár — hefur
verðið 207= eyri komin til Noregs, og
hefur svipað verð fengist fyrir íslenska
sild þangað komna, tilsvarandi ár. Þetta
ætti ekki hvað síst að vera mönnum til
leiðbeiningar fyrir seinni timann og vekja
menn lil umhugsunar um það hvort ekki
sje ráðlegt að fara varlega með kaup á
stórum og útgjörðarfrekum mótorbátum
eflirleiðis, einungis með það fyrir augum
að græða fje á síldveiðinni. Yíst er um
það, ófriðurinn hættir fyr eða siðar og
þá er ekki ólíklegt að síldarverðið kom-
ist lægra en það hefur verið þessi um-
getnu ár. Aihugi menn þetta.
Frá 24. maí, hafa Svíar með lögum
bannað að senda út úr landinu saltan
þorsk, löngu, ýsu, upsa og lúðu.
Norðmenn hafa ákveðið og fyrirskipað
háverð á nýjum síldartunnum, sem ekki
má yfirslíga kr 7,00 fyrir hverja tunnu,
afhenta á sldpsfjöl eða járnbraut á þeim
stað sem smíðið fer fram. Þó má bæta
við verðið fluttningsgjaldi, ef afhending
er áskilin annar staðar.
Fiskmarkaðurinn.
Kaupmannahöfn: Fyrirliggjandi hyrgð-
ir hjer miklar, einkum af saltfiski. óráð-
legt að senda hingað meir fyrst um sinn.
Þorskur afhnakkaður kr. 138,00 skpd.,
óafhnakkaður kr. 125,00. Saltfiskur 80—
82 kr., flutlui' á sldpsfjöl á íslandi. Upsi
80 kr. hjer.
Lýsi. Meðalalýsi óhreinsað 210 kr.
tunnan. Aðrar tegundir Í70—180 kr. af-
hent hjer á staðnum.
Hrogn, 60 kr. tunnan. Sundmagi kr.
1,50 kíl.
Aðrar fiskilegundir svo sem ýsa, þyrskl.,
labrador, langa o. fl., hefur ekki verið
seldar svo mjer sje kunnugt frá íslandi
til Miðjarðarhafsins. Aftur á móti hefur