Ægir - 01.07.1916, Qupperneq 9
ÆGIR
85
um að geta náð í þær þegar þarf, mikils
virði og það sýnir sig best nú, þegar
þær tunnur sem ekki fást eru dýrastar.
S. E.
Skýrsla
frá erindreka Fiskifjelags íslands erlondis
til stjórnar Fiskifjelagsins.
Til loka maímán. höfðu Norðmenn
fiskað eins og eftirfarandi skýrsla sýnir,
samanborið við undanfarandi ár.
Afli 1916 1915 1914
Þorskur, mill. st 47,4 61,2 76,3
Þar af hert mill. st. 2,9 14,1 16,0
Saltað mill. st. 41,5 44,7 57,6
Gufubrætt lýsi hl. 55,769 49,052 54,143
Hrogn hl. 62,097 52,924 60,480
Veiðin er nú mjög á þrotum og eru
bátar sem óðast að hætta, síðustu viku
hættu um 1000 bátar og er þátttaka í
veiðinni mikið minni en undanfarin ár
og stafar þetla mjög mikið af vöntun af
beitu, einkum norðarlega á Finnmörk-
inni. Gufuskip og mótorbátar, sem fiska
frá Aalesund hafa einnig fiskað lítið, og
telja litla von um atla eftirleiðis.
Sú breyting hefur orðið á verkun á
fiski þeim, sem fiskast hefur á Finnmörk-
inni frá þvi sem að undanförnu, að
ekkert af fiskinum hefur verið verkað
til útfluttnings til Rússlands (Russebe-
handlet). Sú verkun hefur verið i þvi
innifalin að bátarnir hafa verið úti i
nokkra daga og íleigt fiskinum i lestina
jafnóðum og hann aflaðist og svo stráð á
hann salti að einhverju lej'ti. Þótt fisk-
urinn skemdist við þannig lagaða aðferð
þá hafði það ekkert að segja, hann var
eins góð verslunarvara fyrir því. Undan-
farin ár hefur hjerumbil 8/io hlutar af
fiski þeim sem aflast hefur á Finnmörk-
inni verið þannig verkaður og seldur lil
Rússlands, en í ár ekki neitt.
Verð á fiskinum hefur að undanförnu
verið i veiðistöðunum norður frá, frá
40—50 aura kil. hausað og slægt. Lifur
150—190 aura líter.
Til samanhurðar skal það tekið fram
að verð á fiski undanfarin ár um sama
leyli hefur verið:
1915 1914
13—23 aur. kil. 10—15 aur. kil.
1913 1912
8—12 aur. kil. 4—7 aur. kil.
Þannig er verðið allt ag 10 sinnum
hœrra en 1912.
Síld. Vart hefur orðið lítilsháttar við
sild í Norðursjónum síðustu daga. Þannig
aflaði gufuskipið Kinn frá Bergen þ. 3.
þ. m. 300 tunnur sem það seldi fyrir
65—70 kr. tunnu. Hollenskt gufuskip
kom einnig um sama leili inn til Bergen
með 35 tunnur sem scldust á 100 kr. tunn-
an. Norður með ströndum Noregs hef-
ur einnig orðið vart á stöku stað bæði í
reknet og snyrpinætur, og hefur verðið
verið frá 55—80 kr. málið.
Verð á fiski og fiskajurðum hefur sið-
ast verið skráð á kauphöllinni i Bergen
þann 10. þ. m.
Meðalalgsi, óhreinsað 450 kr.
Annað hjsi, 350—370 kr.
Vor-sild hefur selst á 110 kr. lílil
verslun.
Hrogn hafa lækkað, lítil verslun.
Salt, frá Miðjarðarhafi 12,00 kr. 140
lilrar.
Enskt salt, 9,50 kr. 140 lílrar.
Síldarveiði Norðmanna Tið ísland.
Ræðismaður Breta í Bergen, hefur 2.