Ægir - 01.07.1916, Síða 15
ÆGIR
91
reksturs lyftivjelar í nýja pósthúsinu og
fyrir ljósböð o. fl. á lækningastofu Jóns
Kristjánssonar nuddlæknis.
Leiðsluefnið i húsunum er að mestu
leyti frá fjelaginu Siemens Schuckert.
Stöðin án hústauganna kostaði um
15000 krónur.
(Timaril Verkfrœðinga/jclags íslands.)
r
Islenskur hugvitsmaour.
Jón S. Espholin vjelfræðingur, hefur
fundið upp nýja bifvjelagerð (Motor),
sem sjefræðingum i þeirri grein geðjast
mjög vel að. Jón hefur lagt stund á
ýmsa vjelfræði erlendis i mörg ár, var
til dæmis lengi í þjónustu Burmeister &
Wain. Siðastl. ár var hann hjer lieima
og fullgerði þá teikningarnar af bifvjel
sinni, og fór með þær utan i nóvbr.
siðastl. Þegar til Kaupmannahafnar kom,
fjekk hann þegar ýms tilboð um smíði
á vjelinni, og sneri hann sjer að síðustu
að nafnkunnri bifvjelarverksmiðju þar,
sem þegar tók til starfa við smiðið, eftir
teikningum og uppdráttum Jóns.
Þetta er fyrsta bifvjel, sem búin er til
af íslendingi, og er ánægjulegt að allar
likur eru til að gerðin reynist mæta vel.
Ættu úgerðarmenn nú að taka höndum
saman og styðja Jón til þess að koma á
fót bifvjelaverksmiðju hjer eða í Reykja-
vik, svo atvinna aukist í landinu og arð-
urinn af þessari alislensku uppfynding
lendi ekki i erlendar hendur.
Nýkomin brjef frá Jóni segja, að smíði
fyrstu vjelarinnar miði vel áfram. »Esp-
hólinmólor« á barnið að heita. Einn af
kostunum er sá að 12—15 hesta »Esphól-
inmótor« tekur ekki meira rúm og eyðir
ekki meiri olíu, en t. d. 8 hestafla »Hein-
mótor«. Nú er Jón að gera teikningu af
skipabifvjelum, 25—30 hestafla, með ein-
um »Cylinder«, og 50—60 hestaíla, með
tveimur »Cylindrum«. Annars hefur hann
liaft umsjón með bygging 4 mótorskipa
í vetur og þegar því er lokið, kemur
hann hingað heim, snögga ferð. Þá hefur
hann fyrsta »Esphólínsmótorinn« með
sjer ef hann verður fullgerður.
(Norðurland.)
Síldveiðarnar
við ísafjarðardjúp.
Eftir þvi sem ráðgert er munu sild-
veiðar verða reknar hjeðan i stærri stíl
í sumar en áður. í hitt eð fyrra var
fyrsta tilraun gerð með herpinótum eða
snyrpinótum af vjelbát lijeðan og hepn-
aðist sú tilraun vel. í fyrra gengu hjeðan
6 vjelbátar á sildveiðar, og öíluðu sam-
tals um 9200 lunnur. Var það betri aíli
en samskonar vjelbátar fengu yfirleitt
nyrða. — Þetta hefur leitt til þess að
útgerðarmenn stærri bátanna hjer, hafa
nú flcstir fengið hringnætur og báta, og
ætla að reka síldveiðar í sumar. Auk
þess ætla og nokkur norsk skip að hafa
bækistöðvar sínar hjer vestra.
Frá þessum stöðvum liefur Veslri heyrt
að reknar verði sildveiðar i sumar:
Frá Hvalveiðastöðinni »Heklu« i Hest-
eyrarfirði, af tveimur norskum gufuskip-
um. í Álftafirði, frá báðum gömlu hval-
veiðastöðvunum þar: Dvergasteinseyri,
sem E. Rokstad i Rvík., o. fl. hafa
keypt, af einu eða fleirum gufuskipum,
og á Langeyri af »Jarlinum«, botnvörpu-