Ægir - 01.03.1919, Side 8
22
ÆGIR
læknir Brynjólfnr Björnsson og banka-
stjóri Magnús Sigurðsson, kosnir til 4
ára.
Á fundinum voru alls mættir 15 fé-
lagsmenn, og af þeim var einn, Svein-
björn Oddsson frá Akranesi. Hann tal-
aði um nauðsyn þá, er bæri til þess að
reyna að fá Faxallóa friðaðan fyrir boln-
vörpuveiðum, þar eð róðrarbátaútgerð
væri nú þegar orðin mikil, en mundi að
öllu leggjast niður, eins og raun heíir
orðið á áður, ef yfirgangur sá, er áður
var hjer í Flóanum, byrjaði á ný. Mál
þetta var lítið rætt, enda litlar likur til
þess, að landhelgislínan fáist færð, en
óhugsandi er það þó ekki, ef friðarfund-
urinn tæki slík mál til meðferðar og ís-
land hefði þar fulltrúa, sem talaði fyrir
þessu máli og öðru, sem nauðsyn bæri
til. —
Fleira gerðist ekki á fundinum.
^lal/stilur ,framtilarimiar‘
á €yrarbakka.
Ár 1919, 31. janúar hélt fiskifélagsdeild-
in »Framtíðin« á Eyrarbaklca aðalfund
sinn í húsinu »Fjötni«.
Fundarstjóri Guðmundur Sigurðsson,
skrifari Einar Jónsson.
Þar var:
1. Lesinn ársreikningur deildarinnar og
samþyktur alhugasemdalaust.
2. Kosin stjórn til næsta starfsárs, og
hlutu kosningu þeir: Guðmundur ísleifs-
son, með 47 atkv., Sigurjón Jónsson, með
18 atkv., Einar Jónsson, með 15 atkv.
Varastjórn: Jóhann E. Bjarnason, með 13
alkv., Ingvar Jónsson, með 10 atkv. og
Guðfinnur Þórarinsson, með 13 atkv. End-
urskoðendur þeir: Jón Einarsson, með 23
atkv., Þorkell Þorkelsson, með 19 atkv.,
til vara þeir: Guðmundur Jónsson, með
10 atkv. og Guðmundur Sigurðsson, með
10 atkv.
3. Salt og samkaup í því. Málshefjandi
Guðmundur ísleifsson, benti á að formenn
þyrftu að vera vakandi í því máli, og nú
hefði salt lækkað og einhver ráð yrði að
hafa að ná í það, þar sem ónóg salt væri
hér fyrir.
Jóhann Jóhannsson kvað formenn Þor-
lákshafnar myndu fyrst koma sér saman
um einhver ráð að ná í saltið þegar í
verið væri komið. — Tillaga kom frá
Guðm. ísleifssyni þannig hljóðandi:
»Fundurinn felur stjórn fiskifélagsdeild-
arinnar »Framtiðin« að fara þess á leit
við formannafélag Þorlákshafnar, að hún
leyfi þeim sjómönnum og útgerðarmönn-
um á Eyrarbakka, er þess óska, að vera
í félagi við sig um væntanleg saltkaup til
næslu vertíðar«.
Urðu svo um þetta nokkrar umræður
fram og aflur, kom svo fram tillaga frá
Guðmundi Jónssyni þannig hljóðandi:
»Það er lillaga mín að fiskifélagsstjórnin
ásamt formönnum hér, lílvegi salt sem
nægi Eyrarbakka veiðstöð, en formanna-
félag Þorlákshafnar liugsi um Þorlákshöfn,
en samkaup eigi sér stað ef hagnaður er
að því«.
Tók þá Guðm. ísleifsson sína tillögu
aftur, var svo tillaga Guðm. Jónssonar
borin undir atkvæði og samþykt í einu
hljóði.
4. Veiðarfæri. Málshefjandi Guðm. ísleifs-
son talaði uin hver vandræði væri með
veiðarfæri og benti á, að eitthvað þyrfti
að gera í því máli, og áleit réltast að fela
það forinannafélags- og deildarstjórnum
liér til frekari aðgerða, þegar hægt væri:
skýrði frá að alt væri búið að gera sem