Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1919, Blaðsíða 9

Ægir - 01.03.1919, Blaðsíða 9
ÆGIR 23 hægt væri að gera nú, en ekkert væri kom- ið en vonir bráðlega, urðn um það litlar umræður en engin álj'klun tekin. 5. Samvinnufélagssknpur fyrir sjómenn austanfjalls. Las fundarstjóri upp fundar- gcrð frá fundi sem haldinn var í fyrra um það mál hér i deildinni, sömuleiðis las hann uppkast að lögum fyrir það félag. Urðu um það allmiklar umræður, því sú hugmynd mælti allharðri inótspyrnu frá Jóh. V. Daníelssyni, eins og fyr, var svo engin ályktun tekin í því máli. 6. Sala fiskafurða. Guðm. ísleifsson henti á að nauðsyn væri að kjósa 3 manna nefnd til að verðleggja blautar fiskafurðir, líkt og gerl var á síðustu verlið, og félst fundurinn á það og hlutu kosningu til þess þeir: Árni Helgason, Ársæll Jóhanns- son og Jóhann Loftsson. Þá mintist fundurinn þorsteins Júl. Sveinssonar. 8. í fundarlok kom fram svohljóðandi tillaga: »Fundurinn votlar stjórn »Fiskifélags ís- lands þakkir fyrir góða samvinnu á liðnu ári«. Var hún samþykt með öllum alkvæðum. Fleira ekki rælt og fundi slitið. G. Siguvdsson. Einar Jónsson. Frá Skag'afl.rði, Sanðárkróki, 9. jan. 1919. Árferði til fiskiveiða hér við Skagafjörð hefir verið fremur slæmt árið 1918, eink- anlega út með firðinum að vestan. Stormar og brim, frá því kom fram í júlí, ollu Þ'i> einkum á Skaganum austanverðum, að menn gátu ekki sótt sjó sem skyldi. 'nnig voru oft beitu vandræði langa tíma. Hafsild gekk ekki á fjörðinn og aðalbeitan var smásild, sem við og við fékst í fyrirdrátt á Sauðárkróki, og endr- um og eins í lagnet. Fuglatöku við Drangey stunduðu 15 út- höld, (en til suinra úthaldanna voru tveir bátar, sem stunduðu veiðina saman). Sam- tals veiddusl þar 55563 fuglar. Það út- haldið, sem mest bar úr býtum, (í því 2 bátar), hafði 9890 fugla, en það sem minst veiddi hafði 150 fugla, en það mun að eins hafa verið stundað örfáa daga. Öll eggjataka í eyjunni var 11230 stykki. Yfirleitt mun úthald við Drangey borga sig, og á sumum árum mjög vel. Veiðin þetta ár var ekki fullkomlega í meðallagi, en hefir þó gefið arð. Frá Sauðárkróki stunduðu 15 árabátar (flest fjögurra manna för) fiskiróðra síðari hluta sumarsins (frá í júli) og var aflinn i meðallagi. En ekki var hægt að sækja sjó sem skyldi, sökum beitu vandræða á vissum tímum. Meðalafli á bál mun hafa verið 35—40 skpd. (Miðað við verkað skpd.). Þólt aflinn sé ekki meiri, liafa úthöldin borið sig ve), og þcir sem atvinnu höfðu af tiskveiðum, hafa borið gott úr býtum. Mestallur fiskurinn var seldur sveitamönn- um, það sem framleiðendur ekki nota sjálfir. Fiskiveiðar út með Skagafirði að vestan voru rnjög litlar. Á Skaganum, sem undan- farin ár hefir veiðst að mun, var enginn afli í ár, sem stafar af því, að framan af sumrinu, og raunar altaf, var enga beitu að fá þar, og siðari hluta sumars voru stöðug austanbrim og stormar, svo langa tíma var ekki hægt að komast á sjó, en nokkur fiskur fyrir ef gæftir hefðu verið. Frá Sauðárkróki var haldið út litlum mótorkútter til þorskveiða, á timabilinu frá miðjum mai til ágústmánaðarloka. Á hann aflaðist ca. 88 skpd.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.