Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1919, Blaðsíða 22

Ægir - 01.03.1919, Blaðsíða 22
36 ÆGIR en áður. Væri það hvöt fyrir okkur fs- lendinga til þess að leggja meiri stund á hákarlaveiðar heldur en til þessa og liætta því sleifarlagi að fleygja öllu nema lifrinni. Heima. SjóyátryggingarK'lag íslands. Svo heitir félag, sem nj'stofnað er hér í bænum. Stofndagur þess er 15. jan. siðastl. Nafnið ber með sér, hvert sé verkefni fé- lagsins. f*að er einstakra manna fyrirtæki, stofnað með 1 milj. kr. höfuðstóli og er V* hlutafjárins þegar innborgaður. í stjórn félagsins eru: L. Kaaber bankastjóri, for- maður, Sv. Björnsson lögmaður, varaform , Halld. þorsteinsson skipstjóri, Hallgr. Krist- insson framkv.stj. og Jes Zimsen konsúil, en framkvæmdarstjórar félagsins eru, A. V. Tulinius fyrv. sýslumaður og F. Kalkar, danskur maður, kunnugur vátryggingar- málum. Endurlryggingar hefir félagið feng- ið bjá útlendum félögum. — Fyrirtækið er framfaraspor og gott, að vátryggingarstarf- semin komist að nokkru á hendur inn- lendra manna. Hútur ferst. 5 menu drukna. 5 febr. fórst bátur frá Vestmannaeyjum við lendingu á Landeyjasandi. Rað var smábátur sendur frá vélbáti, sem útifyrir beið, til þess að sækja fólk í land, en dimt var orðið og hvolfdi bátnum við sandinn. 5 menn voru á honum og fórust allir, en 2 voru eftir í vélbátnum. Peir, sem druknuðu, voru: Halldór Árnason frá Hvammi í Mýrdal, Páll Jónsson frá Kirkju- læk, Ágúst.......frá Deild í Fljótshlíð, Jónas Benediksson, úr Reyðarfirði, og Har- ald Normann, norskur maður. Þetta er 3. báturinn sem ferst meö 5 mönnum nú á örstuttum tíma, og er hörmulegt^ til þess að vita, hve sjóslysin eru hér tíð. Manntjónið í Eyrarsveit vestra. 5 menn hafa farist þar á báti. Mennirnir voru þessir: Ásmundur Sigurðsson oddviti í Suður-Bár, Guðm. Magnússon i Tjarn- arbúð, Jón Elíasson í Norður-Bár og son- ur hans og sonur Kjartans Ólafssonar á Akurstöðum. Egill Sknllngrímsson, hinn nýji botnvörpungur Kveldúlfsfélags- ius hér í bænum, lcorn hingað 6. þ. m. frá Grimsby á Englandi. Hann var smíð- aður í Englandi árið 1916, en vegna ófrið- arins fékk félagið hann ekki afhentan fyr en nú. Er sagt að Englendingar hafi not- að skipið til þess að slæða tundurdufl. En ekki hefir það sakað og nú er það hing- að komið og á að taka til óspiltra mál- anna við liskveiðarnar. Skipsljóri verður Guðmundur Jónsson, sá er áður stýrði Skallagrími. — Skip þelta er stærst af botnvörpuskipum þeim er íslendingar enn hafa eignast, 312.84 registerlon brúttó og 160.2« nelto. Fiskiskipin. Kútterarnir liafa nú uudanfarna daga verið að tínast inn. Hafa þeir allir aflað ágætlega, af vænum fiski. Hart veður hafa þeir fengið og voru skipin á að sjá sem isjakar. Duusskipin fiskuðu: Ása (Friðrik Ólafsson) 14 þús. Keflavík (Símon Sveinbjörnsson) 15 þús. Milly (Jóhann Stefánsson) 12 þúsund. Sigurfari (Jóh. Guðmundsson) 11 þús. Björgvin (Guðjón Guðmundss.) 14.b þús. Hákon (Sig. Guðmundsson) 12 þúsund. Seagull (Kjartan Stefánsson) 14 þúsund. Sæborg (Ólafur Teitsson) 15.s þúsund. Valtýr (Pétur M. Sigurðsson) 29 þús. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.