Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1919, Blaðsíða 7

Ægir - 01.12.1919, Blaðsíða 7
Fiskifélag íslands. 1. gr. Félagið heitir „Fiskifélag íslands“. Að- setur þess er í Reykjavík. 2. gr. Tilgangur félagsins er að styðja og efla alt það, er verða má til framfara og um- bóta í fiskiveiðum íslendinga á sjó, ám °g vötnum, svo þær megi verða sem arð- samastar þeim, er hafa atvinnu af þeim, °g landinu í heild sinni. þessum tilgangi leitast félagið við að ná með því: a) að gefa gaum að merkilegum nýmæl- um, er verða i fislciaðferðum og með- ferð fiskiafurða innan lands- og utan, hvetja menn til að reyna þau, er við vort hæfi eru, og veita þeim verðlaun, sem skara fram úr í þvi tilliti. Styrkja efnilega menn til þess að afla sér þekkingar, utanlands eða inn- un, á því, er verða mætti atvinnu þeirra eða fiskiveiðunum i heild sinni til gagns. k) Að gefa eftir megni, þeim, er þess óska, upplýsingar eða leiðbeiningar um alt það, er getur orðið þessum atvinnu- vegi að liði. c) Að stuðla að endurbótum á lendingum °g höfnum, fjölgun vita og annara sjómerkja, að bjargráðum á sjó og með ströndum fram, að góðri með- ferð á afla og vöruvöndun, að greið- ari samböndum milli veiðistöðva inn- an lands og hagkvæmari sambandi við útlenda markaði, og að öðru því, er bæta má hag sjávarmanna. d) Að fræða almenning' um þau málefni, er snerta fiskiveiðar og þær atvinnu- greinar, er standa í sambandi við þær, á þann hátt, er best verður við komið og efni félagsins leyfa, svo sem með útgáfu smárita, tímarita eða öðruvísi. e) Að gæta hagsmuna og réttar íslenskra fiskimanna og annara, er atvinnu hafa af fiskiveiðum, beinlínis eða óbeinlínis, og í samvinnu við landsstjórnina og löggjafarvaldið, leitast við að gera fiskivciðarnar sem öruggasta og arð- bærasta atvinnu fyrir landið. f) Að stuðla að aukinni þekking á lífs- háttum íslenskra nytsemdarfiska og vísindalegum rannsóknum á þeim atriðum i fiskifræði, er sérstaklega þætti ástæða til, að tilraunum með fiskiklak, að stofnun fiskiáhalda og fiskiritasafns í Reykjavík. 3. gr. Félagar geta orðið: Hver sá, er vill styrkja tilgang félags- ins. Svo mörg eru þessi orð. Mönnum þykir félagið aðgerðarlaust, en gæta ekki að hvert verlcefni stjórnin

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.