Ægir - 01.12.1919, Qupperneq 7
Fiskifélag íslands.
1. gr.
Félagið heitir „Fiskifélag íslands“. Að-
setur þess er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að styðja og efla
alt það, er verða má til framfara og um-
bóta í fiskiveiðum íslendinga á sjó, ám
°g vötnum, svo þær megi verða sem arð-
samastar þeim, er hafa atvinnu af þeim,
°g landinu í heild sinni.
þessum tilgangi leitast félagið við að
ná með því:
a) að gefa gaum að merkilegum nýmæl-
um, er verða i fislciaðferðum og með-
ferð fiskiafurða innan lands- og utan,
hvetja menn til að reyna þau, er við
vort hæfi eru, og veita þeim verðlaun,
sem skara fram úr í þvi tilliti.
Styrkja efnilega menn til þess að
afla sér þekkingar, utanlands eða inn-
un, á því, er verða mætti atvinnu þeirra
eða fiskiveiðunum i heild sinni til
gagns.
k) Að gefa eftir megni, þeim, er þess óska,
upplýsingar eða leiðbeiningar um alt
það, er getur orðið þessum atvinnu-
vegi að liði.
c) Að stuðla að endurbótum á lendingum
°g höfnum, fjölgun vita og annara
sjómerkja, að bjargráðum á sjó og
með ströndum fram, að góðri með-
ferð á afla og vöruvöndun, að greið-
ari samböndum milli veiðistöðva inn-
an lands og hagkvæmari sambandi við
útlenda markaði, og að öðru því, er
bæta má hag sjávarmanna.
d) Að fræða almenning' um þau málefni,
er snerta fiskiveiðar og þær atvinnu-
greinar, er standa í sambandi við þær,
á þann hátt, er best verður við komið
og efni félagsins leyfa, svo sem með
útgáfu smárita, tímarita eða öðruvísi.
e) Að gæta hagsmuna og réttar íslenskra
fiskimanna og annara, er atvinnu hafa
af fiskiveiðum, beinlínis eða óbeinlínis,
og í samvinnu við landsstjórnina og
löggjafarvaldið, leitast við að gera
fiskivciðarnar sem öruggasta og arð-
bærasta atvinnu fyrir landið.
f) Að stuðla að aukinni þekking á lífs-
háttum íslenskra nytsemdarfiska og
vísindalegum rannsóknum á þeim
atriðum i fiskifræði, er sérstaklega
þætti ástæða til, að tilraunum með
fiskiklak, að stofnun fiskiáhalda og
fiskiritasafns í Reykjavík.
3. gr.
Félagar geta orðið:
Hver sá, er vill styrkja tilgang félags-
ins.
Svo mörg eru þessi orð.
Mönnum þykir félagið aðgerðarlaust,
en gæta ekki að hvert verlcefni stjórnin