Ægir - 01.04.1926, Qupperneq 12
56
Æ G I R
Önnur islenzk blnð eru vinsamlegast
beðin að birta þessa grein.
Kristján Bergsson.
Fiskmarkaðurinn á Ítalíu.
Verzlunarhúsið Enrico Gismondi &
Co. Genova, sem er stærsti innflyljandi á
fiski til Ítalíu, og kaupir rúmlega helm-
ing af öllum fiski sem þangað flyzt,
hefir sent umboðsmanni sínum hér á
landi mjög fróðlegt yfirlit yfir fisksöl-
una þar árið 1925, og hefir hann góð-
fúslega leyft Ægi að birta það af henni
sem hann vildi, og fylgir hér útdráttur
úr henni í lauslegri þýðingu.
Markaðsskilyrði, sem ekki voru góð í
byrjun ársins 1925, bötnuðu ekki þegar
leið á árið, og má það því yfirleitt telj-
ast mjög slæmt bæði fyrir framleiðend-
ur, út- og innflytjendur.
Söluhorfur á ítaliu voru slrax slæmar
fyrri hluta ársins sökum altot mikils
innflutnings fyrsta ársfjórðunginn, og
það vernsnaði enn þá meira þegar nýja
framleiðslan kom við það að líran fór
stöðugt fallandi jafnframt því sem gengi
Norðurlanda hækkaði ört.
Næst kemur löng og greinileg skýrsla
um harðfisksinnflutninginn á árinu, en
þar sem ekkert af honum er flutt héð-
an er þvi slept.
Verkaður saltfiskur. Beri maður sam-
an innflutning á honum til Genova og á
undanfarandi árurn, sézt að hann hefir
minkað töluvert. Árið 1925 eru iluttar
inn 14000 smálestir, 15000 árið 1924 og
16500 árið 1923. Rrátt fyrir það, að af
frönskum fiski hafa verið innfluttar 800
smálestir og af fiski frá Labrador 100
smálestir meira en árið 1924. Rrátt fyrir
það, þó ísland sé enn þá stærsti inn-
flytjandinn til Ítalíu, hefir þó innflutn-
ingur þaðan minkað um 1300 smál. á
árinu og þelta verður enn þá augljósara
þegar athugaður er innflutningur á nýju
framleiðslnnni trá */i—81/h bæði árin.
Innflutt til Genova 1925, 3882 smál.
1924, 6107 smál.
Innflutt til Neapel 1925, 1953 smál.
1924, 3541 smál.
Af frönskum fiski (Lavé) var flutt til
Genova síðari hluta ársins 4180 smál.
Þrátt fyrir það, þó að reiknað sé með
að mest af þeim fiski 939 smál. sem
flutt er til Ítalíu frá Englandi, Hollandi
og Danmörku sé frá Islandi, þá er ekki
hægt að loka augunum fyrir því að inn-
flutningur á franska fiskinum hefir auk-
ist á kostnað íslenzka fisksins.
Hver er ástæðan fyrir þessu? Er það
sökum mismunar á gæðum fisksins?
Það er það ekki, því innflytjendur á íta-
líu vilja íslenzka fiskinn langtum heldur
því hann skarar mikið fram úr að gæðum.
Rað er heldur ekki af þeirri ástæðu,
að kaupendur fái hagkvæmari borgunar-
skilmála, því allir stærri innflytjendúr
hér selja viðskiftamönnum sínum is-
lenzkan fisk með gjaldfresti eða i fastan
reikning. Ástæðan liggur eingöngu i verð-
mismuninum, þvi íslenzki fiskurinn hefir
í ár oft verið 30% hærri í verði en sá
franski, og þá er það skiljanlegt að neyt-
endur kaupi hann heldur.
Verðfall á liski varð mikið í febrúar
sökum óhæfilega mikils innflutnings á
fyrsta ársfjórð'ungnum, en hækkaði aftur
smátt og smátt og komst hæst i ágúst
og september. 1 endaðan sept. byrjaði
innflutningurinn af franska fiskinum og
hélzt út október.
1 október kom farmur af fiski frá
Labrador, en þar sem sá fiskur var