Ægir - 01.06.1926, Blaðsíða 10
102
ÆGIR
meiri en ýmsir þeir, sein mikið berast á.
Honum var ekki létt um mál. En samt
var því svo varið, að í orðasennum á Al-
þingi fór hann aldrei halloka fyrir nein-
um. Starfsmaður var hann mikill og fljót-
ur að skilja hvert mál, þótt hann færi sér
oft hægt, er hann skyldi láta uppi álit sitt
á því. öllum mönnum ,sem með honum
unnu, var vel til hans, og yfirleitt var
hann vinsæll maður og mikilsvirtur af
almenningi, bæði nær og fjær.
•
Hann kvæntist 12. maí 1892 Þóru Jóns-
dóttur Péturssonar háyfirdómara, ágætri
konu, og' hefir sambúð þeirra verið hin
besta. Börn eignuðust þa u engin, en kjör-
dóttir þeirra var Þóra Guðmundsdóttir
læknis í Stykkishóhni, systurdóttir frú
Þórú. Hún var gift Oddi Hermannssyni
skrifstofustjóra, en andaðist í inflúensu-
veikinni haustið 1918.
Jón Magnússon var um eitt skeið vel
efnaður maður. En forsætisráðherraem-
bættið mun hafa reynst honum útgjalda-
frekt. Hann var höfðingi í lund og ör á fé,
og sást ekki lyrir þótt hann legði fram fé
frá sjálfum sér i þarfir embættis síns og
stöðu sinnar.
,1. M. hafði hlotið mörg heiðursmerki
og voru þau jjessi: stórkross Fálkaorð-
unnar, stórkross Dannebrogsorðunnar og
heiðursteikn Dannebrogsmanna, stórkross
hinnar finsku hvítu rósarorðu, komman-
dörkross heiðurslegionarinnar frönsku,
stórkross Ólafs helga og stórkross hinnar
pólsku orðu Polonia Restituta.
Jóns Magnússonar hefir verið mjög
vel og vingjarnlega minst í mörguni helstu
bb'iðum Dana.
(Með leyfi „Lögrjettu").
Skýrsla
um fiskmarkaðinn á Spáni
í maí-mánuði 1926.
Barcelona 3. júni 192G.
Barcelona: Fiskbirgðirnar hér í borginni
voru um mánaðarmótin apríl-maí á að
giska kringum 1300 smál. Innflutningur
hingað í maímánuði nam um 1200 smál.,
þar af komu um 50 smál. frá Englandi, en
um 60 smál. frá Bilbao. Nú um mánaða-
mótin maí-júní, er áætlað að hér liggi ná-
lægt 1200 smál. og er mestalt af því ýmist
húsþurkaður fiskur eða fiskur af lakari teg-
undum. Salan, eða afsetningin, hefir því
verið kringum 1300 smál. En það er enn
sem fyr, að talsvert af þessum fiski hef-
ir verið sent upp um sveitirnar, og er örð-
ugt að segja hve mikið af þeim fiski hefir
verið raunverulega selt, eða hversu mikið
kann að liggja þar óselt.
Verðið hefir farið talsvert lækkandi síð-
ari hluta mánaðarins. Síðast í apríl og
fyrri hluta maí mátti enn fá alt að því 85
pes. fyrir bestu tegundir af sólþurkuðum
l'iski. En þegar kom fram yfir miðjan mán-
uðinn fór að verða örðugt að halda í þetta
verð og bar margt til: samkepni við Bilbao
um markaðinn inni í landinu, húsþurkaði
fiskurinn, fréttir sem farnar voru að ber-
ast um tilboð á nýjum fiski o. s. frv. Upp
frá þessu fór verðið að smálækka, og mun
nú um mánaðamótin lítið sem ekkert selj-
ast yfir 80 pes., en vitanlega mest alt það-
an af lægra.
Annars hefir salan hér í borginni i þess-
um síðastliðna mánuði verið furðanlega
greið, og betri en búast mátti við eftir árs-
tíðinni. Hefir þar valdið talsverðu um, að
vorið hefir komið óvenjuseint, hitar ekki
byrjaðir að nokkru ráði og óstöðugt veður
á ströndinni. Sardíuyeiðin hefir verið með