Ægir - 01.09.1926, Side 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ISLANDS.
19. árg.
Reykjavik, September 1926.
Nr. 9.
Nýj ungar í ísl. fiskifræði.
Stjórn Samyinnu-fiskirannsóknanna hef-
ir í sumar gefið út eitt hefti af skýrslum
sínum (Rapports et Procés-verbaux des
Réunions), og er það skýrsla frá prófessor
Johs Schmidt um rannsóknirnar á „Norð-
vestur-svæðinu“ (The North-Western Area)
árin 1924 og 25, en próf. Schmidt er for-
maður nefndar þeirrar, er stjórnar þeim
rannsóknum og sjórinn umhverfis ísland
telst undir það svæði.
Auk almennrar skýrslu um rannsóknar-
starfið þessi ár og aðalútkomuna af því, eru
í heftinu 7 ritgerðir (á ensku) flestar eftir
danska höfunda, þar af ein um rannsókn-
irnar við Grænland 1925, eftir Ad. S. Jen-
sen prófessor, ein um flyðruna við ísland
(On the Halihut in Icelandic Waters) eft-
ir mag. P. Jespersen, ein um rannsóknir á
ísl. síld 1924 og 25 (Investigation on Ice-
landic Herrings in 1924 and 1925) eftir Dr.
A. C. Johansen, ein um tíðleika þorskseiða
við N- og A-strönd íslands um langt skeið
(The Frequency of Young Cod etc. on the
North and East Coast of Iceland . .. .) eftir
próf. Schmidt; ein er bráðabirgða skýrsla
um íslenska ýsu (Preliminary Report on
Iceland Haddock) eftir Mr. Harold Thomp-
son (Skota) og loks ein um íslenskan skar-
kola (Contributions of the Life-History of
the Ieelandic Plaice) eftir Mag. Vedel Tá-
ning.
Mag. Jespersen skýrir frá rannsóknum
á smálúðu, veiddri í Faxaflóa, á „Thor“
1908—09, á „Dönu“ 1924—25 og á „Explo-
rer“ 1925; er hún inestöll 10—15 cm. löng og
veturgömul til fjögurra vetra; er það eink-
um eftirtektarvert, að fiskur á sama aldri
er að jafnaði mun stærri (lengri og þyngri)
árin 1924-25 en 1908-09; 1908—09 er þre-
vetri fiskurinn yl'irgnæfandi, 1924 tvævetri,
en 1925 aftur þrevetri fiskurinn. Við sam-
anburð á aflanum í og fyrir utan landhelgi
sýnir það sig (sem áður hefir verið skýrt
frá hér í blaðinu), að tala fiska í landhelgi
hefir verið 18,2, utan landhelgis 9,7, á tog-
tima eða nærri tvöfalt fleiri í en fyrir ut-
an landhelgi og að þyngd yfir þrefalt meiri
(5,58 kg. í, 1,75 kg. utan). Stærðarmunur
enginn í og fyrir utan landhelgi. Allur vet-
urgamli fiskurinn er tekinn fyrir utan land-
helgi. — Fæðan er aðallega smá krabbadýr
og sandsíli; tvævetrungarnir lifa mest á
krabbadýum, fervetrungarnir á sandsíli.
Telur Dr. Schmidt smálúðuna verða fyrir
þungum og ískyggilegum búsyfjum af hálfu
botnvörpuveiðanna i Flóanum, sem hann
telur (eins og Hka má) mikla gróðrarstöð
heilagfiskisins.
Dr. Johansen skýrir frá rannsóknum á
síld af Selvogsbanka (veidd 15./2.—20./4.),
frá Fuglaskerjum (v. 14./9.), frá Kögri
(v. 6./9.), af Skagafirði (v. 22./7.) og úr
Eyjafjarðarál (v. 12./9.). Það er í fyrsta
sinni, að höf. hefir haft velgejmida vetrar-
vertíðarsíld frá suðurströndinni, þ. e.: vor-
gotsíld, til rannsóknar og staðfesti sú rann-
sókn það sem hann hafði áður fundið, að
þessi síld væri nákvæmlega sama síldarkyn-